Loksins er hann kominn, lét ekki bíða eftir sér! Hríðirnar byrjuðu á miðnætti 13. sem var akkúrat dagurinn sem hann var settur á. Hríðirnar stigmögnuðust yfir nóttina og kl. 7 um morguninn voru 4-5 mínútur á milli hríða og þá fórum við uppá spítala. Sóttin jókst síðan jafnt og þétt yfir daginn og Karen var tilbúin að rembast akkúrat þegar Bobba, ljósmóðirin okkar úr MFS, mætti á svæðið beint úr sumarfríi. Það var kl. 8 um kvöld og strákurinn var síðan mættur í heiminn kl. 21:39. Hann var 16 merkur að þyngd, 52 cm langur og með 38 cm í höfuðmál. Gistum síðan nóttina í Hreiðrinu þar sem var lítið sofið og mikið dáðst að drengnum. Það var frábær þjónusta í Hreiðrinu og allar ljósmæðurnar mjög hjálpsamar og góðar.
Það er ennþá óvíst hverjum drengurinn líkist en hann er a.m.k. með nefið hans pabba síns og tásurnar hennar mömmu. Hann er búinn að vera mjög vær og góður, miklu rólegri en við áttum von á. Nú erum við komin heim og erum að kynnast hvort öðru og njóta lífsins 🙂 .