Elektrovej 330, C-4
2800 Kgs Lyngby
Denmark
Og símanúmerið mitt er +45 2153 2836
Það er líka sími í gámnum mínum +45 4525 6972 sem er kannski ódýrara að hringja í þar sem það er landlína.
Elektrovej 330, C-4
2800 Kgs Lyngby
Denmark
Og símanúmerið mitt er +45 2153 2836
Það er líka sími í gámnum mínum +45 4525 6972 sem er kannski ódýrara að hringja í þar sem það er landlína.
Ósköp rólegur dagur í gær. Fór með Julie, Tiberiu, Bruno, Matteus og Eduarda í IKEA, sem er rétt fyrir utan Lyngby, svona 40 mínútur gangandi. IKEA er að sjálfsögðu allsstaðar eins, fékk mér sænskar kjötbollur í hádegismat og keypti svo nokkra hluti, sængurver, vekjaraklukku, ljósaperur, lampa og eitthvað fleira smádót. Var svo bara hérna heima í skúrnum í gærkvöldi að spila vist við krakkana hérna og síðan einhverja Skype leiki við Karen í tölvunni.
Í dag byrjaði svo alvara lífsins. Bæði var fyrsti dagurinn hjá Microsoft og fyrsti skóladagurinn. Ég svaf aðeins of lengi þannig að ég rauk út til að ná strætó til Microsoft og fékk mér engan morgunmat. Hitti strák frá Litháen, Giedrius, á strætóstöðinni sem var líka að byrja hjá Microsoft. Við byrjuðum á að hitta Tim sem er yfir team-inu okkar. Það var allt í kaos því það var verið að flytja milli skrifstofa og fyrsta sem við gerðum var að reyna að koma fyrir 5 skrifborðum í herbergi þar sem augljóslega áttu ekki að vera fleiri en 4. Við vorum að djóka með að þetta væri örugglega lokaprófið fyrir starfið, ef við næðum ekki að raða þessu eðlilega þarna inn yrðum við reknir á staðnum. En það tókst á endanum og við fengum tölvur og fórum að setja þær upp. Á meðan fór Tim á fund og við héngum inná þessari skrifstofu í 2 og hálfan tíma að gera meira og minna ekki neitt. Danskur strákur sem heitir Sven sýndi okkur aðeins svæðið. Þetta er ekki bara ein bygging, þetta er svona eins og mini-campus með nokkrum byggingum og stórum garði allt í kring, mjög nice. Maður þarf ekki að borga fyrir hádegismatinn og það besta af öllu: ÓTAKMARKAÐ ÓKEYPIS KÓK! (já, ég veit að það er bara eins og að fá 200 kall auka á dag eða eitthvað, en ég kann að meta kók
). Við fórum í mat með Tim og hann sagði okkur aðeins betur frá þessu en síðan þurfti ég að rjúka því ég átti að vera í tíma eftir hádegi og var þegar orðinn of seinn.
Ég mætti loksins í tímann kl. 3 og var búinn að missa af fyrstu 2 klukkutímunum. Það var ansi slæmt því kennslan hafði byrjað á fullu og ég var alveg úti að aka. Kúrsinn heitir Program Analysis og eftir því sem ég best sé er hann hrikalega erfiður, sérstaklega fyrir mig sem er ekki með neitt sérstaklega mikinn stærðfræðibakgrunn. Ég keypti bókina eftir tímann og var að lesa í henni núna áðan og já, þetta verður brútal :S . Nú er bara að vera duglegur að læra! Á morgun er það svo Computationally Hard Problems, annar erfiður kúrs og svo eitthvað að útrétta í bænum eftir það.
Á fimmtudaginn fór ég útá Kastrup kl. 9 að taka móti Karen og Daníel. Mjög gott að sjá þau aftur, Daníel faðmaði mig bara og kjökraði “pabbi” fyrst þegar hann kom til mín. Við byrjuðum á að fara með lestinni til DTU og kíkja aðeins í skúrinn minn. Ég sýndi þeim aðeins campusinn og svo fórum við með lest til Gentofte þar sem hótelið okkar var. Eftir að við vorum búin að koma okkur fyrir þar fórum við svo niðrí miðbæ og vorum þar að þvælast framað kvöldmat. Fórum m.a. í Tiger og keyptum allskonar dót fyrir herbergið mitt hérna. Tókum það svo bara rólega uppá hótelherbergi um kvöldið. Daginn eftir vorum við aftur niðrí miðbæ fram að hádegi og svo fór ég með þeim útá flugvöll að kveðja.
Ég nennti ekki að fara í Introduction week matinn sem var um kvöldið, var bara að hanga inná herbergi, en fór svo á lokapartý Introduction week um kvöldið. Það var fínt, hitti Edda sem var með mér í HR og fleiri Íslendinga og var þar til svona 1. Einum franska stráknum sem ég er með í skúr fannst Danirnir hafa hræðilegan tónlistarsmekk og var mjög hneykslaður þegar YMCA var spilað og allir fóru að gera handahreyfingarnar
.
Í dag vaknaði ég svo seint, um 11 leytið. Kom Skype-inu í gang (einaregilsson er nafnið) og talaði við Karen heima á Íslandi. Webcamið er algjör snilld, miklu betra en að tala bara í símann! Fór svo niðrí miðbæ með Gium og Julie, frönskum strák og stelpu sem ég bý með. Við fórum að leita okkur að hjólum. Vorum reyndar frekar sein þannig að margar búðir voru lokaðar en fundum að lokum eina góða og keyptum okkur öll hjól. Ég keypti mér blátt 3 gíra hjól á 800 danskar krónur (u.b.b. 9600 isk). Gium og Julie fóru svo að hitta aðra Frakka í bænum en ég ætlaði heim með lestinni. Þá kom í ljós að lestarnar gengu ekki eftir 5 í dag svo maður átti að nota strætóana í staðinn. Þeir voru allir troðfullir svo ég ákvað bara að hjóla alla leiðina til Lyngby. Það tók rúman klukkutíma og ég er núna kominn hingað, dauður af þreytu. Planið fyrir kvöldið er að þvo þvott og horfa kannski á einn Sleeper Cell þátt (villt háskólalíferni í fullum gangi hérna). Á morgun erum við í skúrnum svo að plana fjöldaferð í IKEA sem virðist vera það eina sem er opið á sunnudögum í Danmörku.
Jæja, ég er ekki lengur einn í skúrnum mínum. 8 manns fluttu inn í fyrradag, eitt herbergi er ennþá laust. Þeir sem ég bý með eru:
Þau eru öll fín og okkur kemur bara vel saman. Ennþá hefur ekki verið nein barátta um sturtuna eða klósettið
. Í gær byrjaði svo Introduction Week. Ég var í hóp C og var þar með Búlgara, franskri stelpu og frönskum strák, stelpu frá Lettlandi, tveim strákum frá Póllandi, einum frá Rússlandi, einum frá Ítalíu og einum frá Grikklandi. Við byrjuðum bara á að borða morgunmat og tala saman, svo fórum við í smá túr um Campusinn og síðan var hádegismatur. Eftir það var fyrirlestur um Danmörku og “Cultural Differences”. Þar var Ítölunum meðal annars bent á að þó að þeim fyndist Danirnir vera “cold and distant” þá þýddi það ekki að þeir væru að reyna að vera óvingjarnlegir, þeir væru bara svona. Og að það væri meira “personal space” hérna en þeir eru vanir. Það var líka talað um stundvísi, Frakkarnir sem búa með mér höfðu einmitt sagt áður en við lögðum af stað “Oh, we better leave early, the danish people don’t like it when you’re late”. Þeir sögðu að í Frakklandi væru allir alltaf seinir, og fannst mjög skrýtið að ef einhver segði þeim að mæta kl. 9 ættu þeir að, öh, mæta kl. 9!
Eftir fyrirlesturinn var smá leikur þar sem hópurinn þurfti að fara um Campus og svara ýmsum spurningum, svona til að sýna okkur aðeins hvar hlutirnir væru. Svo var kvöldmatur og eftir það var farið á Cellar bar sem er í aðal DTU byggingunni. Ég var ekki mjög lengi þar, því að það var alltof mikið af fólki, en fór með nokkrum krökkum úr Campus Village heim og við vorum með smá eldhúspartý.
Í dag fórum við svo í túr til Kaupmannahafnar. Byrjuðum á að fara í ferju um árnar þarna og það var guide sem sagði okkur frá borginni. Það var fínt, en það var soldið skrýtið að hún var sífellt að segja eitthvað eins og:
Og það var a.m.k. tvennt eða þrennt í viðbót. Fólkið á bátnum var farið að djóka með að Danirnir breyttu öllu á endanum í “very expensive apartments!”. Alltaf þegar hún benti á eitthvað nýtt var fólk að hvísla “…but it has been turned into very expensive apartments!”. “On your left you see the little mermaid…” hvísl(”next week she will be turned into very expensive apartments!”)
Fórum síðan og borðuðum á grænmetis veitingastað og fórum á Student huset sem er stúdenta bar. Ég vildi ekki vera lengi þannig að ég fór um 10 og tók strætó heim með Eduarda og Matteus sem búa með mér. Á morgun koma svo Karen og Daníel og verða eina nótt og ég hlakka ekkert smá til!!!!
Gerði ekki mikið í gær. Fór uppúr hádegi að finna Microsoft bygginguna, vildi vita hvar hún væri og hvernig ég ætti að komast þarna áður en ég á að mæta á mánudaginn í næstu viku. Ég tek tvo strætóa þangað og labba svo smáspöl, þetta er lengra frá Kaupmannahöfn en Lyngby. Sendi líka póst á konuna í starfsmannahaldinu hjá þeim og spurði hvort það væri eitthvað formal dress code hjá þeim. Hún sagði að það væri ekki og tók fram að “in fact we’re very informal”. Svo væntanlega get ég bara mætt í baðslopp og inniskóm og allir verða rosa ligeglad og finnst það bara fínt. Skellti mér svo á bíó í Lyngby og sá The Bourne Ultimatum sem var bara mjög góð. Fór svo og þvoði öll fötin mín í S-skúrnum sem er þvottaskúrinn, en þurfti að fara í annan skúr til að nota þurrkara þar sem þurrkararnir í S-skúrnum voru báðir bilaðir.
Í dag fór ég svo og fékk skattkort. Þurfti reyndar að fara tvisvar þar sem ég gleymdi Microsoft samningnum mínum í fyrra skiptið og konan hjá skattinum þurfti eitthvað að skoða hann. Hitti svo loksins einhvern sem býr í mínum skúr. Belgískur strákur sem heitir Xavier og er að læra “Material Science” var að flytja inn. Þvældist aðeins um með honum, fórum að finna búðina sem er hérna á campusnum. Mjög mikil háskólabúð, helstu vöruflokkarnir eru áfengi, snakk og skyndimatur. Nú er bara planið að slappa aðeins af og á morgun byrjar svo Introduction Week.
Mér líst annars bara mjög vel á þetta allt saman. Gaman að kynnast fólki frá öllum löndum og umhverfið er mjög fínt. Nú verður maður bara að vona að námið verði það líka…
Svaf til 10 þar sem ég fór ansi seint að sofa í gær. Var svo bara hangandi hérna heima fram að hádegi, pantaði hótel fyrir daginn sem Karen og Daníel koma og hékk á netinu. Fór svo niðrí bæ að kíkja á Strikið. Það var Gay pride í gangi á Ráðhústorginu, risatónleikar sem ég kíkti aðeins á. Var svo bara þarna að þvælast um meirihlutann af deginum.
Eftir að ég kom heim hékk ég heillengi inná herbergi í tölvunni og bara eitthvað að vesenast. Fannst það svo orðið frekar leiðinlegt eftir nokkra klukkutíma þannig að ég ákvað að kíkja aðeins út. Þegar ég kom út sá ég að það var slatti af fólki hangandi fyrir framann einn skúrinn, svo ég ákvað gegn öllu mínu eðli að fara aðeins og tala við ókunnugt fólk. Það var mjög fínt. Það voru þarna 3 bandaríkjamenn (og tveir þeirra voru alveg svona “awesome dude” bandarískir), ein brasilísk stelpa, tveir frakkar, einn spánverji, einn þjóðverji og tveir ástralar. Við vorum þarna í alveg svona 2 og hálfan eða 3 tíma, bara hangandi úti að spjalla um hitt og þetta. Meðal annars um byssur, 2 bandaríkjamannan voru frá Texas og fannst mjög fínt að eiga byssur meðan ég og ástralarnir voru meira á skoðuninni “af hverju í ósköpunum ætti ég að vilja eiga byssu???”.
Var svo bara að koma inn núna og er að fara að sofa. Planið fyrir morgundaginn er að þvo fötin mín (það er sér þvottaskúr) og finna út hvaða leið er best að fara til Microsoft.
Ég fór með strætó kl. 5 í morgun úta flugvöllinn í Varsjá. Hélt ég væri nú bara mjög tímanlega og það leit út fyrir það fyrst. En ég reiknaði ekki með því að öryggishliðið er rétt áður en maður fer útí vél og þar lenti ég í svakalegri röð, löngu komið final call á flugið mitt og endaði á því að ég og svona 10 aðrir farþegar vorum einir í rútunni sem fór í vélina, allir hinir voru löngu komnir. Þegar ég lenti svo í Danmörku tók ég lestina á Central stöðina og keypti mér þar vikupassa í allar lestar og strætóa á þeim zone-um sem ég verð mest á. Síðan fann ég rétta lest til Lyngby station og tók strætó þaðan uppí DTU. Mjög gott að komast lokins inná herbergi um hádegisbil og slappa aðeins af.
Þegar ég var búinn að taka uppúr töskunum og svona fór ég í administration bygginguna þar sem ég ætlaði að fá staðfestingu á námi sem ég þarf að skila inn til leikskólans hans Daníels. Þeir eru með sérstaka vél þarna sem prentar út svona staðfestingar og nokkur önnur algeng skjöl en maður þarf að vera búinn að fá stúdentakort til að nota hana og ég fæ það víst í næstu viku. Þannig að ég dreif mig bara niður í bæ í Lyngby og fór að versla. Ég hafði nú haldið fyrirfram að maður væri bara hérna í skólanum en færi svo í miðborg Kaupmannahafnar ef maður vildi fara eitthvert út, en þetta er alveg alvöru bær hérna, fullt af verslunum og öllu svona.
Ég þurfti að kaupa ýmislegt, byrjaði á að kaupa handklæði, fór svo í City Hall þar sem mér hafði verið sagt að ég gæti skráð mig sem íbúa, en þar bentu þeir bara á að fara annað, í eitthvað Commune þar sem maður skráir sig víst. Fór þangað, skráði mig inní landið og fékk CPR númer sem maður þarf víst til að geta gert eitthvað hérna. Það er bara íslenska kennitalan mín, nema einn stafur var öðruvísi, sennilega bara mistök hjá konunni sem skráði þetta. Hún lét mig líka merkja við hvaða lækni ég vildi hafa og svo að lokum sagðist hún vera með smá pakka til mín frá bæjarstjóranum. Hvernig vissi hann að ég væri að koma??? Það var a.m.k. einhver bæklingur um Lyngby, tveir frímiðar í sund og eitthvað fleira sniðugt.
Síðan fór ég að opna bankareikning, þar sem ég var kominn með CPR númerið mitt. Þar lenti ég á einhverri konu sem vildi endilega tala dönsku við mig. Hún sagði eitthvað á dönsku, sem ég skildi svona að mestu leyti, ég svaraði á ensku og svo hélt hún áfram á dönsku. Þegar við vorum komin lengra inní þetta þurfti ég að segja ‘ha’ við öllu þannig að hún var farin að segja allt fyrst á dönsku og svo á ensku (sem hún talaði bara mjög vel). Ég var alvarlega farinn að íhuga að segja henni bara Det er en interessant rødvin, man kan godt drinke den i tog svo hún mundi nú endanlega fatta að ég væri vonlaust keis og skipta bara yfir í enskuna. En ég gerði það ekki, við töluðum bara mjög hægt saman og gengum frá þessu á endanum. Ég á víst von á einhverjum massa pósti frá þeim og þá fyrst get ég sótt um sjálft debetkortið.
Síðan ætlaði ég að ná í skattkortið mitt en það lokar víst kl. 13:30 á föstudögum, Commune dótið lokaði líka kl. 14:00, þessir Danir nenna greinilega ekkert að vinna!
Þannig að ég fór bara að versla meira, fór og keypti mér danskt símakort (21532836) sem ég á eftir að prófa, ég gæti þurft að hringja í Vodafone heima og grátbiðja þá um að aflæsa símanum mínum áður en það virkar. Splæsti líka í USB sjónvarpskort fyrir tölvuna mína, þannig að ég get horft á sjónvarpið hérna inní herbergi. Fór svo í Nettó að kaupa í matinn, það virðist vera svona Bónus hjá Dönum, nema ennþá hrárri uppstillingar. Í hillunum með snyrtivörunum var þeim eiginlega ekki raðað upp, það voru bara hrúgur af drasli í hillunni og öllu hálfblandað saman. En ég keypti svona þetta helsta, tannkrem og tannbursta, mjólk, djús, morgunkorn og svona, þannig að nú er ég nokkuð góður, hillan mín í ísskápnum er a.m.k. vel full. Það virðist enginn annar vera fluttur inní skúrinn minn, hef a.m.k. ekki rekist á neinn ennþá.
Seinni partinn klúðraði ég svo strætóferðinni úr bænum og fór einhvern massífan hring um allt nágrennið í svona klukkutíma. Komst svo loksins heim, fékk mér að borða og fór að lesa í dönskubókinni minni og reyna að koma netinu í gang sem var eitthvað bras, ég var búinn að gleyma einhverju passwordi og eitthvað krapp, var loksins að detta inn fyrir svona 2 tímum.
Er að fara að sofa, skrýtið að sofa einn, sakna Karenar og Daníels. Stefni á að finna þvottavélar og panta hótel fyrir Karen og Daníel á morgun, og svo kannski kíkja í bæinn. Þið megið örugglega eiga von á nokkrum maraþonbloggum í viðbót næstu daga ![]()
Jæja, það er svo mikið að skrifa núna að ég ákvað að skipta því í tvö blogg, eitt um daginn í Danmörku á leiðinni til Póllands og Póllandsferðina, og eitt um alvöru fyrsta daginn í Danmörku sem var í dag.
Í Póllandi vorum við svo í góðu yfirlæti í viku. Við vorum á hóteli í gamla bænum sem var bara fínt. Fórum nokkrum sinnum í mat til Hönnu og nokkrum sinnum til Ellu, Gregoz og Pálinu. Vorum bara að þvælast á daginn, fórum oft með Daníel á frábæran róló sem var rétt hjá Hönnu, fórum líka í konunglega garðinn þar sem er allt fullt af fiskum í tjörnunum, og fullt af páfuglum. Það var mjög fínt og Daníel duglegur að hlaupa þarna um allt. Við fórum svo tvisvar í dýragarðinn. Í fyrra skiptið var Daníel svo þreyttur að hann svaf af sér öll spennandi dýrin þannig að við fórum aftur á afmælinu mínu og leyfðum honum að sjá ljónin, tígrisdýrin og öll kúl dýrin. Hann var nú samt eiginlega hrifnastur af öpunum.
Afmælið mitt var daginn áður en ég fór til Danmerkur og við eyddum góðum parti af deginum í dýragarðinum, komum svo aðeins við í H & M að versla og fórum svo í mat til Ellu og Gregoz. Þar fékk ég fullt af afmælisgjöfum, fékk Vodkaflösku frá Hönnu og sokka, belti og 5 hryllingsmyndir frá Ellu, Gregoz og Pálínu. Svo bara heim á hótel að pakka, þar sem ég þurfti að vakna kl. 4:45 daginn eftir. Karen og Daníel verða þarna í viku í viðbót og koma svo til mín einn dag í næstu viku og fara svo heim. Ég segi svo frá fyrsta Danmerkurdeginum í næsta bloggi
Síðan ég flutti að heiman fyrir 7 árum hef ég reglulega þurft að fá lánaða borvél hjá pabba til að setja upp hillur o.þ.h. En í gær varð ég að manni: ég keypti mér mína eigin borvél! Fátt er karlmannlegra en að kaupa sér bor! Á karlmennskuskalanum frá 0 - 10 (þar sem 0 er að horfa á America’s Next Top Model og 10 er að veiða skógarbjörn með berum höndum) þá hljóta borvélarkaup að vera a.m.k. svona 8! Ég keypti borinn í gær, þegar ég vaknaði í morgun var ég kominn með 50% meira hár á bringuna! Í gær og í dag er ég svo búinn að hlaupa um alla íbúð og bora allt sem þarf að bora, sem ég er venjulega mjög latur við að gera. En að öllu gríni slepptu þá er tvennt við þessa borvél sem ég er mjög ánægður með:
Annars er bara að styttast í að ég fari til Danmerkur. Við förum öll saman til Póllands 17. ágúst og verðum þar á hóteli í Varsjá. Ég fer síðan 24. ágúst til baka til Danmerkur en Karen og Daníel verða í Póllandi til 30 ágúst. Ég er búinn að fá herbergi á campus fyrstu önnina og er á biðlistum eftir stúdentaíbúðum eftir jól. Daníel og Karen koma svo til mín um áramótin. Ég var að klára að velja áfangana fyrir fyrstu önnina í gær og ég verð í fríi á föstudögum og byrja eftir hádegi á mánudögum þannig að það verður auðvelt að skjótast heim um helgar.
Ég er líka kominn með hlutastarf úti með skólanum, verð að vinna hjá Microsoft. Þeir eru víst með 900 manna starfstöð þarna. Fékk póst frá þeim snemma í sumar þar sem þeir báðu mig og nokkra aðra að sækja um, DTU hafði víst bent þeim á nokkra nemendur. Ég sendi þeim CV og letter of presentation og fór svo í mitt fyrsta símaviðtal ever, og á ensku í þokkabót. En það gekk allt vel og ég fékk starfið, verð að vinna þar svona 10-15 tíma á viku með náminu.
Hvað fleira? Fórum í útilegu síðust helgi og vorum næstum eina fólkið í tjaldi á svæðinu, allir í hjólhýsum eða tjaldvögnum á risajeppum. Einhverjir ofdekraðir krakkar komu upp að okkur og spurðu okkur:
“Eruð þið bara í tjaldi??? Er ykkur ekki kalt??? Eruð þið FÁTÆK???”
“Hefur mamma þín aldrei kennt þér að tala ekki við ókunnuga?”
Hefði ég átt að segja. Í staðinn sagði ég “uuhh, hérna, nei”, (jamm, ég er king of the comebacks!). Karen skrifar meira um þetta og fleiri sem komu að dást að tjaldinu okkar þarna.
Og þá held ég að ég sé búinn að segja frá flestu sem er búið að gerast undanfarið. Nema 2 vikna Búlgariuferðinni okkar. Kannski seinna.
Sá Die Hard 4 um daginn. Hún var ágæt. Besta kvótið í myndinni:
[John McClane er að ná í Matt, Matt þykist vera einhver annar]
| Matt’s Friend: | Hey Matt, I just downloaded that new copy of Killzone, the one that’s not out yet. You wanna play? |
| Matt: | Nooooo thanks, but good luck at the bad timing awards. |
Fer annars bráðum að skrifa meira hérna. Fer til Danmerku eftir 2 vikur og þá verð ég örugglega duglegri að blogga ![]()