Þegar ég var lítill þá voru bara tvær gerðir af páskaeggjum, frá Nóa Siríus og Mónu. Nói Siríus var samt alltaf aðal, Mónuegg voru alltaf í öðru sæti, þó það mætti notast við þau í neyð. Núna hinsvegar eru komin páskaegg frá fullt af framleiðendum í allskonar stærðum og gerðum, t.d strumpaegg, púkaegg og Harry Potter egg. Mér finnst þetta farið ansi langt frá því sem páskarnir snúast um! Ég man a.m.k. ekki eftir neinum strumpum í Biblíunni (reyndar hef ég ekki lesið hana, en ég er nokkuð viss um að það eru engir strumpar þar, það kæmi mér mjög á óvart). Annað sem er asnalegt eru stærðirnar á páskaeggjunum í dag. Allir framleiðendur ættu auðvitað að fylgja metrakerfinu eins og Nói Siríus, en nei, sumir framleiðendur eru allt í einu bara með páskaegg nr. 9 sem er minna en páskaegg nr. 6 frá Nóa Siríus! Hvernig á maður eiginlega að bera svona saman til að ákveða hvað maður á að kaupa? Þetta er bara rugl! En sem betur fer þarf ég ekki að pæla í þessu þar sem ég fékk gefins ekta páskaegg frá vinnunni, Nóa Siríus egg nr. 4 með unga ofaná :).
Gamlar færslur fyrir flokkinn Vinna
Hmmm, ansi langt síðan ég hef skrifað eitthvað hingað inn! Þetta gæti orðið ansi langt blogg þannig að ég hef það í 6 köflum og byrja á kafla 4.
Kafli 4: Nýtt hús
Við erum búin að kaupa okkur íbúð! Við erum búin að liggja yfir fasteignaauglýsinum á hverjum degi í marga mánuði. Á fimmtudaginn í þarsíðustu viku sáum við svo íbúð í Svarthömrum í Grafarvogi sem okkur leist mjög vel á. Hún er á annarri hæð, er ekki langt inní Grafarvogi, er 4ja herbergja (flestar sem við skoðuðum voru 3ja herbergja), er með suðursvalir, sérinngangi og er í fínu ástandi. Ekki spillir svo fyrir að íbúðin er bara tveim húsum frá Völu og Hjalta :). Við skoðuðum hana á sunnudeginum, gerðum tilboð á mánudeginum, eigandinn gerði gagntilboð og við skrifuðum undir endanlegt kauptilboð á þriðjudeginum. Svo fór eitthvað svona íbúðalánasjóðsferli í gang og við skrifuðum undir kaupsamninginn núna á mánudaginn. Við fáum hana sennilega afhenta 1. maí, en í seinasta lagi 7. maí.
Kafli 5: Sýklarnir gera árás
Á laugardaginn síðasta urðum við öll veik, ég, Karen og Daníel. Ég og Karen fengum gubbupest og Daníel fékk hita. Ég hélt ég væri orðinn hress á mánudaginn og fór uppí vinnu í hálftíma á fund en svo þurftum við að fara með Daníel til læknis því hitinn hjá honum var að rjúka svo mikið upp. Á mánudagskvöldið var ég aftur kominn með hita og er búinn að vera með hann + hausverk og beinverki síðan. Daníel er búinn að vera með háan hita en er laus við hann núna (sjúkrasögu Daníels má lesa í smáatriðum á síðunni hans). Þannig að það er bara búið að vera slappleiki, andvökunætur og hor í lítratali síðustu daga.
Kafli 6: Einar snýr aftur til vinnu
Þessi kafli byrjar vonandi á morgun! Er búinn að vera heima í 5 daga (fyrir utan að fara og skrifa undir kaupsamninginn) og er kominn með snert af cabin fever. Það er takmarkað hversu mikið af E! maður getur horft á í sjónvarpinu. Ég veit orðið óeðlilega mikið um einkalíf Jessicu Simpson. Ég horfði meira að segja á Heil og Sæl endursýnt á Skjá einum í morgun! Að komast aftur í vinnuna verður bara eins og að fara í frí!
Jæja, þetta er búið að vera ansi viðburðaríkt ár. Í tímaröð:
- Útskrifaðist sem tölvunarfræðingur úr Háskólanum í Reykjavík.
- Eignaðist lítinn strák, Daníel Mána.
- Ég og Karen giftum okkur og skírðum Daníel í leiðinni.
- Byrjaði í fyrstu “alvöru” vinnunni minni, hjá Libra sem er deild í TM Software. Seinna á árinu var Libra svo keypt útúr TM software af sænska fyrirtækinu OMX.
- Fór í árshátíðarferð til Póllands með vinnunni, Karen og Daníel komu með, hittum ættingja Karenar í Póllandi.
- Seldum íbúðina okkar í Guðrúnargötunni, erum að leita að nýrri íbúð.
Verðu erfitt að toppa síðasta ár en vonandi verður jafnmikið fjör á árinu 2006. Gleðilegt ár! ![]()
Var á SQL Server 2005 námskeiði í allan gærdag. Fyrirlesarinn var gaur sem heitir Bob Beauchemin sem er víst snillingur í SQL Server. Hann var að gefa út bók og gaf eitt stykki á námskeiðinu og ég var sá heppni :). Ég er semsagt núna stoltur eigandi bókarinnar A First Look at Microsoft SQL Server 2005 for Developers.
Við fórum á jólahlaðborð Libra í gær. Fyrst var fordrykkur heima hjá Þórði og svo var farið á Thorvaldssen þar sem við vorum í sér sal og fengum önd, lambakjöt og einhvern íseftirrétt. Fínn matur og mikið fjör.
Það sem var svo mesta snilldin var jólapakkaleikurinn ógurlegi, Yankee swap. Þetta er leikur sem gengur útá að allir koma með ómerktan pakka, eitthvað sem kostar svona 2000-2500 kr. Svo eru númer frá 1 - n og allir draga númer. Sá sem fær númerið 1 fær fyrstur að velja sér pakka og opnar hann fyrir framan alla hina. Svo kemur sá sem fékk númerið 2 en hann má annaðhvort velja sér pakka eða stela gjöfinni af númer 1. Ef hann stelur þá verður nr. 1 að velja aðra gjöf úr hrúgunni. Svo gengur þetta svona koll af kolli og þegar komið er að þeim síðasta getur hann valið síðasta pakkann eða stolið af hverjum sem er. Þetta var mikið stuð, fyrstu nokkrir völdu pakka, svo kom að okkur og þá stal ég kassa með 2 bjórum og Mugison disk frá Þóri en seinna stal Óli því aftur af okkur. Enduðum uppi með kaffisett, sem var með 2 bollum, undirskálum og kaffipakka, mjög fínt bara. Hrannar fékk viðbjóðslega ljótan fiskiplatta sem gekk víst í 5 ár milli manna í vinnunni hjá Jared sem kynnti okkur fyrir þessum leik, Finnur stal startköplum af framkvæmdastjóranum og bjórarnir sem Óli stal af mér voru teknir af honum því það mátti ekki opna þá inná Thorvaldssen, hah!
Ég hef nú oft vælt um það að ég þurfi að fara að stunda íþróttir en lítið hefur gerst í þeim málum. Núna hinsvegar er ég búinn að stunda íþrótt á hverjum virkum degi í meira en mánuð, bæði fyrir og eftir hádegi! Þessi göfuga íþrótt er að sjálfsögðu pílukast! Á hverjum degi tek ég einn leik við Hrannar fyrir hádegi og einn eftir hádegi. Þetta er reyndar spes leikur sem gengur útá að hitta þrisvar í 18, 19 og 20 og tekur svona tæpar 10 mín, við erum ekki að taka alvöru leiki því það tæki alltof langan tíma. Ég hef aðeins verið að taka saman stöðuna og hún er núna 63 - 2 fyrir Hrannari.
Ég finn líka alveg muninn á mér eftir að ég byrjaði þessa öflugu íþróttaiðkun, margir líkamspartar orðnir sterkari og liðugri, t.d. … öh, olnboginn á hægri hendi og… hmmm.. já, olnboginn á hægri hendi. Hann er orðinn mjög sterkur! Pílukast er nú eiginlega bara ein hreyfing, halda hendinni uppi og hreyfa svo framhandlegginn um 45 gráður. En núna get ég farið að taka íþróttaiðkunina uppá næsta stig, því nú er komið foosball borð hérna í Libra! Pílukast OG foosball, ég er orðinn algjör íþróttaálfur…
Alda systir heimtar að ég skrifi eitthvað hérna. Mér dettur reyndar ekkert í hug til að skrifa um þessa dagana þannig að ég bjó til lista yfir það sem hefur verið að gerast síðasta mánuðinn. (Já mér finnst listar góðir. Ég er einhverfur)
- Er farinn að leysa Sudoku þrautirnar í Fréttablaðinu, sem by the way eru svipað ávanabindandi og að reykja krakk! Síðan þegar maður var orðinn vanur því þá kom Blaðið allt í einu með Samurai gátu sem er 5 Sudoku þrautir fastar saman. Fimmfalt krakk!
- Byrjaður að vinna hjá TM Software. Veit ekki hversu mikið ég má segja um hvað ég er að vinna við hérna en ég held að það sé óhætt að segja að þetta er kerfi sem heitir [ritskoðað]sem gerir manni kleift að [ritskoðað] á miklu einfaldari hátt en [ritskoðað]. Það sem ég er aðallega að vinna við í kerfinu er [ritskoðað] sem er ansi spennandi því það notar tækni sem kallast [ritskoðað] sem hægt er að [ritskoðað] og [ritskoðað].
-
Erum flutt úr íbúðinni á Guðrúnargötunni (sem var svo lítil að mýsnar voru með kryppu) yfir í íbúðina hjá tengdapabba í Neðstaleiti (sem er svo stór að mýsnar… eh… eru beinar í baki?) Ok, skelfilegur brandari! En já, þetta er a.m.k. miklu betri íbúð og við verðum hérna þar til við finnum okkur nýja íbúð til að kaupa. Erum í því að ganga frá Guðrúnargötunni núna og ætlum að reyna að selja hana sem fyrst. Ef einhvern langar að kaupa íbúð þá bara láta mig vita
- Er hættur að skokka. Skokk er fyrir plebba.
- Byrjaður og hættur í nýju líkamsræktarátaki sem gekk útá að hlaupa upp 8 hæðir uppí matsal á hverjum degi. Það entist í tvo daga.
- Erum búin að fá okkur nýtt rúm sem mamma og pabbi gáfu okkur í brúðkaupsgjöf. Gamla rúmið okkar var svo mjótt að við urðum að liggja uppá rönd í því en nýja rúmið er aftur á móti álíka stórt að flatarmáli og íbúðin okkar í Guðrúnargötunni (sem var svo lítil að mýsn… hafiði heyrt þennan áður?). Það er a.m.k. mjög stórt, sem veitir ekki af ef ég fer ekki að drífa mig í nýtt líkamsræktarátak!
Svo er náttúrulega fullt að frétta af Daníel en það má lesa um það á síðunni hans.
Póllandsferðin var snilld. Nenni ekki að skrifa alla ferðasöguna, Karen ætlar að skella henni inná síðuna hans Daníels en hér eru nokkrir punktar sem taka má fram:
- Pólverjar selja ferðatölvur með Linux uppsettu.
- Villisvín er ekki jafngott og það lítur út fyrir að vera í Ástríksbókunum.
- Sumum Pólverjum finnst fyndið að senda saklausa ferðamenn á gay bar þegar þeir spurja hvert sé best að fara að djamma.
- Ef maður er á Radisson SAS hóteli og þarf að fara á klóið meðan maður er að horfa á sjónvarpið þá er það allt í lagi því það er hátalari inná baði.
- 5 stjörnu hótel bjóða m.a. uppá kókópöffs í morgunmat.
- Hrannar tippar mjög vel þegar hann er drukkinn, allt uppí 1500% tip fyrir góða leigubílstjóra.
- Flugleiðir ritskoða kvikmyndir sem sýndar eru um borð í flugvélunum.
Pólland á morgun með TM Software. Sniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiilld!!
Páskadagur á morgun. Trúarhátíðin þar sem við minnumst dauða og upprisu Jesú Krists með því að éta súkkulaðiegg og loka videoleigum. Þó að ég sé nú orðinn 24 ára, að verða pabbi, og hafi ekki búið hjá mömmu og pabba í 4 ár þá er ég nú samt nokkuð viss um að mamma eigi eftir að splæsa á mig páskaeggi á morgun. Annars er ég búinn að fá eitt páskaegg nú þegar, lokaverkefnisfyrirtækið okkar, Libra, gaf okkur öllum páskaegg nr. 4. Þegar ég fer að sækja um vinnur í haust ætla ég pottþétt að sækja fyrst um hjá fyrirtækjum sem gefa manni páskaegg, t.d. Libra eða tölvudeild Nóa Siríus.

Færslur (RSS)