Hah! Ég er búinn að finna leið til að skoða BBSið hérna heima þó það eigi ekki að vera hægt utan skólans! Verst að það er frekar gagnslaust þar sem það er búið að loka á lykilkortið mitt :(.
Gamlar færslur fyrir flokkinn Skóli
Þið skólafélagar, takk kærlega fyrir allar fínu gjafirnar :). Þær munu pottþétt nýtast vel! Hlakka til að sjá ykkur einhverntímann í sumar ![]()
Jæja, þá er þetta búið. Mættum uppí skóla í myndatöku kl. 11 þar sem við fengum diss dauðans frá ljósmyndaranum…
[Myndatakan með öllum hópnum, okkur, viðskiptafræðingum og lögfræðingum]
“Glæsilegur hópur, stórglæsilegur!!”
[Seinni myndatakan með bara tölvunarfræðinni]
“Þetta er nú bara nokkuð frambærilegur hópur…”
Fórum síðan yfir hvernig þetta færi allt saman fram og svo var útskriftin. Fékk verðlaun og alles þannig að það var fínt :). Guðfinna hélt svo fína ræðu í lokin þar sem frasar eins og “draumar að rætast”, “standandi á öxlum risa”, “frumkvöðlar”, “stofna eigin fyrirtæki” og “Harvard” komu fyrir ![]()
Síðan voru mamma og pabbi svo góð að halda veislu fyrir mig þannig að ég var þar restina af deginum og kvöldinu. Fékk fullt af fínum gjöfum, t.d. iPod Shuffle sem ég er að hlusta á núna og margt fleira. Skellti mér síðan heim rúmlega 11 og var að pæla að kíkja svo í bæinn en er ekki að nenna því þar sem ég er drulluþreyttur og strákurinn okkar gæti komið á hverri stundu
Einar Þór Egilsson, tölvunarfræðingur.
Haha, nýr póstur frá dr. Kristni gervigreindartöffara að auglýsa sumarstarf. Hér eru kröfurnar til umsækjenda:
“Nauðsynlegt er að hafa reynslu í Java forritun. C++ forritunarreynsla er æskileg. Góð er tök á íslenskar tungumál einnig góð góð.”
Snilldarfyndinn gaur ![]()
Sýning búin, gekk vel, fæðingarorlof næst á dagskrá, gott mál ![]()
Vorum að fá póst frá dr. Kristni gervigreindartöffara. Þar auglýsir hann eftir “mannsheila” til að vinna “beint í kyngimögnuðu sniðmengi gervigreindar og tölvugrafíkur”. Greinilegt að ef maður vill hljóma gáfaður þá á maður að nota stór orð. Kannski ég reyni að finna einhver svona fín orð til að nota í sumar, á meðan heilinn á mér verður í kyngimögnuðu sniðmengi svefnleysis og bleyjuskipta :).
Snilldardagur í gær. Skiluðum inn lokaverkefninu okkar kl. 3 um daginn. Kl. 6 fórum við svo í surprise partý fyrir Guðrúnu sem Nicolai kærastinn hennar hafði planað. Partýið var haldið hjá pabba hennar og var algjör snilld, matur frá Nings, nóg af bjór og rauðvíni og eitthvað vafasamasta geisladiskasafn sem sést hefur!! Eftir að hafa skoðað þetta rosalega geisladiskasafn (Andrea Boccelli/Josh Groban/Norah Jones o.s.fv) þá gátum við ekki annað en ályktað að pabbi hennar Guðrúnar ynni við að semja playlistann fyrir Létt 96.7. En, einmitt þegar við vorum búin að sætta okkur við að eyða kvöldinu í að hlusta á ‘Michael Bolton - The Anthology’, þá kom 11 ára bróðir hennar Guðrúnar okkur til bjargar með KoRn og Guns’n'Roses. Eftir nokkrar sekúndur af Guns’n'Roses disknum kom reyndar í ljós að þetta var panflautuútgáfan af Welcome to the Jungle (ok, ekki alveg, en næsti bær við, Verslóútgáfan) en það var samt 100 sinnum betra en restin af tónlistinni þarna.
Eftir partýið hjá Guðrúnu var svo farið í annað partý hjá Völu. Því miður fer var Singstar græjan ekki í gangi þannig að ég og Vala gátum ekki tekið Daniel Bedingfield dúett en það verður bara gert í næsta partýi. Á endanum fórum við svo í HR partý á Broadway, var þar í nokkra tíma og rölti síðan heim með viðkomu á nammibarnum í 10-11. Fínt kvöld :).
Jæja, erum núna að leggja lokahönd á þetta blessaða lokaverkefni. Erum búnir að sitja hérna sveittir í fjóra mánuði við að gera þetta sem best og held að þetta hafi bara komið mjög vel út. Nú er bara djamm á morgun, sýning 19. og útskrift 11. og þá er maður orðinn tölvunarfræðingur :). Erum búnir að vera hérna alla daga og kvöld síðustu vikurnar og húmorinn er orðinn nokkuð súr. Þær setningar sem hafa oftast heyrst undanfarna 4 mánuði hérna í kompunni okkar eru eftirfarandi:
“Getum við ekki notað message queue í þetta?”
“Ertu með alvöru gögn eða ertu að gengereita?”
“…þetta er bara einsog röð af ljósmyndum”
“Word formatting er DAUÐI!”
“Nú verðum við bara að forrita eins og vindurinn!!”
“Eruði búnir að skrá tímana ykkar?”
“Það er eitthvað crappity í gangi”
“Eigum við ekki bara að sleppa stærðfræðilegum reikniritum?”
“Ertu búinn að tjekka inn?”
“Ertu búinn að getta latest?”
“Finnur, geturðu sagt mér aftur hvað ávöxtunarkrafa er?”
“Æi, eigum við ekki bara að gera bloggkerfi?”
[Bara fyrir tölvunarfræðinema í lokaverkefni…]
Það sem Hrannar ætlar að hafa á legsteininum sínum: “Hrannar Örn Jóhannsson: Object reference not set to an instance of an object”. Þetta fannst mér mjög fyndið þegar Hrannar sagði það í gærkvöldi eftir að við vorum búnir að eyða 12 tímum í að laga villur í forritinu okkar. Ég verð með gjörsamlega ónýtan húmor þegar þetta lokaverkefni verður búið!
Þegar ég var í 10. bekk árið 1996 þá var ég í tölvufræðiáfanga. Hópurinn minn var valinn til að taka þátt í CyberCity 2002, samnorrænu verkefni sem gekk út á að spá í hvernig heimurinn yrði í framtíðinni, nánar tiltekið árið 2002 (Rosa langtímaspá! Núna er ég að byrja á öðru framtíðarverkefni þar sem ég spái fyrir um hvernig heimurinn verður eftir helgi). Okkar hópur var tölvuhópurinn, svo voru aðrir skólar sem voru með myndlistarhópa, tónlistarhópa o.fl. Haustið eftir 10. bekk fórum við svo til Danmerkur að hitta krakka frá hinum Norðurlöndunum sem tóku þátt í sama verkefni. Allan 10. bekk vorum við í tölvufræðitímum að vinna í þessu verkefni, þetta var í fyrsta sinn sem ég prófaði internetið. Við lærðum að búa til vefsíður, lærðum HTML og hvernig ætti að skanna inn myndir og vinna með þær í Photoshop. Við unnum í þessu allan veturinn, lærðum heilmikið, strituðum við að gera þetta eins flott og mögulegt var og afraksturinn varð…
…ljótasti vefur í sögu Internetsins!! Hræðilegir bakgrunnar, skelfilegar litasamsetningar, fáránlegar textastærðir o.s.fv. Fannst þetta nú samt ansi flott at the time :).
Ég var löngu búinn að gleyma þessum vef, en ég og Bjarni fórum að tala um þetta um daginn og þá sagði hann mér að vefurinn væri ennþá til. Ég fór að leita að honum en komst að því að hann væri ekki lengur til á sínum rétta stað en þökk sé Internet Archive þá fann ég gamalt afrit af honum. Ég ákvað að bjarga þessum gullmola internetsins fyrir komandi kynslóðir og setja hann upp hérna á síðunni hjá mér. Hér getið þið séð: CyberCity 2002! Mitt framlag var hið rosalega bíó framtíðarinnar, Bjarni gerði framtíðarhverfisskipulagið og herbergi framtíðarinnar og Friðrik gerði geimferðir framtíðarinnar.
Hér má sjá dæmi um geysiöfluga Photoshop vinnslu!

Færslur (RSS)