Gamlar færslur fyrir flokkinn Nörd

Hvað er að gerast í Danmörku? Síðasta sunnudag elduðu Bruno, Matteus og Francielle brasilískan mat fyrir alla í gámnum. Þetta er víst einhver réttur sem er yfirleitt borðaður á mánudögum í Brasilíu. Það var stór diskur af kartöflumús með smá kjöthakki ofaná, svo var fullt af hrísgrjónum og svo var einhver baunaréttur úr svörtum baunum og einhverju fleiru. Þetta var ágætt, gaman að prófa eitthvað nýtt. Ég splæsti í kók og bjór svona til að leggja eitthvað af mörkum.

Ég var áður búinn að tala um að það ætti að vera keppni milli forritana sem við gerðum í Computational Hard Problems. Við fengum að vita úrslitin síðasta þriðjudag og minn hópur var í 3. sæti. Maður fékk stig fyrir hraða og hversu góð lausnin var sem forritið fann og svo fékk maður bónusstig ef bæði hraðinn og lausnin var góð, svo maður gerði nú ekki bara hraða lausn sem væri krapp. Allavegana, við fengum flösku af rauðvíni í verðlaun, 2005 árgerð af Valpolicella Ripasso, hvað sem það nú er. Ég drekk ekki rauðvín en það er alltaf gaman að vinna :). [Extra nördaupplýsingar: Við hefðum ekki lent í 3ja sæti nema af því að við endurskrifuðum forritið í C++ fyrir keppnina, upphaflega útgáfan í C# tók 12 sekúndur, C++ útgáfan tók 6 sekúndur.]

Núna er ég hinsvegar að horfa á kennsluefni í LEGO Mindstorms, þar sem að á morgun er ég, Eduarda, Tiberiu og Nuno að taka þátt í keppni þar sem maður byggir róbóta. LEGO Mindstorm NXT er eitthvað svona system þar sem maður hefur fullt af kubbum, nokkra skynjara og mótora og svo getur maður smíðað vélmenni og forritað það til að leysa allskonar verkefni. Ég hef aldrei snert á þessu áður, og enginn annar úr hópnum mínum heldur þannig að þetta verður áhugavert. Þetta er í 7 klukkutíma, frá 1-8 á morgun og verður örugglega stuð. Ég hef smá áhyggjur af því að róbótinn gæti orðið self-aware og gert uppreisn gegn sköpurum sínum en að öðru leyti líst mér vel á þetta.

Annað kvöld kemur svo Alda til Danmerkur þannig að ég, hún og Agla verðum örugglega að gera eitthvað skemmtilegt um helgina. Við höfum aldrei áður verið öll 3 systkinin saman í útlöndum. Og, já, þetta er það helsta sem er að frétta af mér.

[Nördablogg]
Rakst fyrir nokkrum vikum á teiknimyndasögu á netinu sem heitir XKCD. Þetta er sú allra mesta nördateiknimyndasaga sem ég hef nokkru sinni séð! Og mér finnst hún ekkert smá fyndin :) Sumt er bara svona almennt, t.d. Long walks on the beach, Shopping Teams, Insomnia, margt hinsvegar meikar engan sens nema maður sé forritari/tölvunörd. Nokkur dæmi:
Bobby Tables
Goto
Compiling
Sweet ass-car
Sudo Sandwich
Centrifugal Bond
Map of Internet
Regular Expressions

Og síðan er fullt, svona 50 % sem er ótrúlega súrt og margt ekki neitt fyndið. En já, þetta er búið að taka við sem uppáhaldsteiknimyndasagan mín í staðinn fyrir Wulff-Morgenthaler.

Punktablogg í þetta skiptið.

  • Prófaði DTU special pizzu á pizzastaðnum sem er á campusnum. Hún átti að vera með kebab skv. lýsingunni. Það þýddi ekki bara kjötið, heldur var eins og einhver hefði hellt úr heilli salatskál yfir alla pizzuna. Mæli ekki með því.
  • Fór í mat til Ebbu og Hilmars á föstudaginn. Þar voru líka Lára og Ómar og svo kom annað íslenskt par sem býr í húsinu líka. Fórum að djamma á einhverjum klúbb sem ég man ekki hvað heitir. Það var stuð. Skrýtið samt að djamma með Láru og Ebbu án þess að Karen væri með.
  • Var uppí Microsoft í morgun, skoðandi villu sem hafði komið upp og skrifandi test til að kalla hana fram. Þá krassaði Visual Studio hjá mér og spurði mig “Do you want to send an error report to Microsoft?”. Ég smellti á No.
  • Fer á kynningardag fyrir nýja starfsmenn á miðvikudaginn, það er eitthvað heilsdagsprógram. Þá er akkúrat mánuður síðan ég byrjaði að vinna.
  • Extra bladet er með slagorðið “Tør, hvor andre tiger”. Alveg eins og DV var áður með, “þorir þegar aðrir þegja”. Væntanlega hafa DV tekið það héðan.
  • Annað borðið úr eldhúsinu í gámnum okkar er horfið. Grunur leikur á að aðrir gámabúar hafi tekið það til að nota í gámapartýi.
  • Ég hef fengið það starf að vera þýðandi í gámnum mínum. Er sífellt að þýða matarumbúðir, bréf og fleira yfir á ensku fyrir hina íbúana. Sebastian sagðist um daginn vilja skoða danska klámsíðu, spurði hvort ég gæti hjálpað honum. Ég sagði honum að hjálpa sér sjálfur.
  • Eftir að tala við Hilmar komst ég að því að það er ekki mistök að danska CPR númerið mitt er ekki sama og íslenska kennitalan mín. Hélt að það væru mistök því bara næstsíðasta talan er öðruvísi, en þá eru þeir bara með eins kerfi, og bara tilviljun að stafir 7 og 8 eru þeir sömu og í íslensku kennitölunni minni. Getur samt ekki verið alveg eins kerfi því vartalan er öðruvísi. [Er búinn að forrita vartölutékk a.m.k. 5 sinnum, ég pæli í þessum hlutum… :) ]

Þá er það komið á hreint að ég fer til Danmerkur í haust. Búinn að fá inngöngubréf frá DTU og skólinn byrjar 28. ágúst á einhverju introduction week. Ég keypti dönskunámskeið um daginn og er núna byrjaður að rifja upp dönskuna. Gengur vel að lesa en svo verður örugglega miklu meira mál að tala. Ég er samt búinn að læra nokkrar setningar sem ég mun reyna eftir bestu getu að troða inní öll samtöl svo ég geti sýnt hvað ég sé góður í dönsku.

Hej (Hæ) 

Jeg hedder Einar.  (Ég heiti Einar)

Jeg er meget sulten.  (Ég er mjög svangur)

Din mor kommer med tog. (Mamma þín kemur með lest)

Hvad hedder din mor? (Hvað heitir mamma þín?)

Man kan godt drinke rødvin med æblekage! (Maður getur vel drukkið rauðvín með eplaköku!)

Det er en interessant rejse (Þetta er áhugaverð ferð)

Þetta hlýtur að nægja mér fyrstu vikurnar. Ef ekki þá get ég alltaf raðað þeim saman á nýja vegu og þar með aukið orðaforðann töluvert. t.d.

Man kan godt drinke rødvin i en interessant rejse (Maður getur vel drukkið rauðvín í áhugaverðri ferð)

Jeg er meget sulten, mmmmm, æblekage (Ég er mjög svangur, mmmm, eplakaka)

Hvað hedder din æblekage? (Hvað heitir eplakakan þín)

Din mor er meget sulten, mmmm, æblekage (Mamma þín er mjög svöng, mmmm, eplakaka)

Det er en interessant rødvin, man kan godt drinke den i tog (Þetta er áhugavert rauðvín, maður getur vel drukkið það í lest)

Sjáum hvort nokkur fattar að ég sé ekki innfæddur þarna.

Í nördafréttum er annars helst að frétta að ég sendi í fyrsta skipti inn kóða í open-source verkefni. Þannig að ef einhver er að nota Django framework-ið og vantar textabox fyrir íslenska kennitölu, íslenskt símanúmer eða combobox fyrir póstnúmer þá er það núna innbyggt í Django í pakkanum django.contrib.localflavor.is_.forms .

Jæja, eins og glöggir lesendur taka eftir þá er komið nýtt útlit á síðuna. Ekki bara nýtt útlit heldur nýtt bloggkerfi. Ég ákvað loksins að hætta með heimasmíðaða bloggkerfið mitt og fara að nota WordPress. Ég byrjaði á að skipta um kerfi á síðunni hjá Daníels og leist svo vel á það að ég ákvað að nota það hjá mér líka. Forritarar sem blogga virðast allir fá sömu hugmyndina: “Hey, bloggkerfi er einfalt. Ég ætla að búa til mitt eigið bloggkerfi!!!”. Það sem gerist er hinsvegar að þeir enda allir með einhver hálfkláruð krapp heimasmíðuð kerfi sem eru ekki næstum því jafn góð og alvöru bloggkerfi sem einhver hefur lagt virkilega vinnu í (og þetta er nákvæmlega það sem gerðist hjá mér :) ). Í WordPress er t.d. innbyggt kerfi til að vinna gegn commentaspami sem ég var búinn að vera í vandræðum með á hinni síðunni, mörg þúsund þemu sem maður getur valið um og endalaus plugin til að gera allt undir sólinni.

Þetta er ennþá ekki komið almennilega í gang, ég er búinn að importa gömlu bloggfærslunum mínum með Python scripti en á eftir að finna eitthvað annað þema, laga linka og myndir í gömlum færslum og laga þetta eitthvað meira til. Það kemur allt á næstunni. Kannski ég reyni jafnvel að skrifa hérna inn öðru hvoru :)

Jæja, commentaspamið heldur áfram. Virðist allt lenda á þessum pósti sem er frekar skrýtið þar sem ég er nokkuð viss um að enginn hefur linkað á hann. Nú eru komin 76 komment. Sjáum hvað þau fara hátt.

Hmmm, ég er byrjaður að fá comment spam. Virðist aðallega vera frá einhverjum brjáluðum hundasölumönnum:

“guard dogs for sale”

“yorkshire terrier dogs for sale”

Og svo eru að sjálfsögðu nokkrar auglýsingar um ódýrt Viagra og eitthvað fleira gott stöff.

Jæja, þetta blogg er meira og minna dautt. Nenni ekki lengur að skrifa á það. Ákvað samt að endurvekja það fyrir eitt gott nördablogg :D

Var að lesa umræðuþráð á http://forums.mozillazine.org þar sem eru umræður um Mozilla forritun og fleira því tengt. Þar var einhver að biðja um extension fyrir Firefox sem leyfði manni að skrolla músarhjólinu yfir leitarboxinu til að skipta um leitarvélar í staðinn fyrir að þurfa að smella á icon-ið og velja síðan nýja vél úr lista. Ég prófaði að búa þetta til, heildar kóðinn var svona 15 línur, og ég setti það á http://addons.mozilla.org . Það kom inná netið svona á hádegi í dag, og núna þegar ég var að kíkja á það þá eru 200 manns búnir að downloada því! Ég veit bara ekki um neitt annað sem ég hef skrifað sem svona margir hafa notað! Ef það er ennþá einhver sem les þetta blogg, notar Firefox, og langar að skoða þetta þá er það á http://addons.mozilla.org/firefox/3696/ .

SUCCESS!! Þráðlausa netið komið í gang hjá mér!

[Nördablogg]

Nú var ég að setja Linux inn hjá mér enn einu sinni. Fólk kvartar stundum yfir að Linux sé “ónotendavænt” en það er bara rugl. Tökum sem dæmi, ég vildi koma þráðlausa netkortinu mínu í gang. Það eina sem ég þurfti að gera var:

Finna út hvaða chipset kortið mitt var með, googla eftir driver fyrir það, downloada source kóðanum fyrir driverinn (sem reyndist vera version 0.0.1 frá árinu 2004), gera make install til að compila drivernum, það virkar ekki, installa header files fyrir kernelinn, installa gcc, gera aftur make install, það virkar ekki, laga villur í driver source kóðanum sem voru útaf einhverju inline functions sem tókst ekki að inline-a, keyra make install aftur, það keyrir í gegn án villna, keyra modprobe zd1205, fá villuboðin FATAL: can’t install zd1205, skoða dmesg til að finna út hvað er að gerast, deprecated symbols á verify_area og pci_sync_single, finna réttu symbolin til að setja í staðinn og replace-a alla staði í source kóðanum þar sem þau koma fyrir, keyra make install aftur, keyra modprobe zd1205, fá aftur FATAL: can t install zd1205, skoða dmesg, sjá villuboðin “Device not found”, grep “Device not found” src/* til að finna hvar þessi villa kemur upp, sjá að hún kemur því að pci_register_driver skilar <= 0, googla pci_register_driver, komast að því að á einhverjum tímapunkti var þessu falli breytt þannig að 0 þýðir núna að allt sé í lagi, breyta pci_register_driver tékkinu í zd1205_hotplug.c, make install, modprobe zd1205 og þá loadast driverinn!

It’s almost too easy! (Bónusstig fyrir að þekkja kvótið!). Núna kemur a.m.k. ljós á netkortið hjá mér og í Wifi-radar forritinu sem ég náði í sé ég þráðlausa netið mitt, en það hefur ekki ennþá tekist að tengjast því af einhverjum ástæðum. En það hlýtur að koma með nokkrum einföldum skrefum í viðbót.