Gamlar færslur fyrir flokkinn Nöldur

Ég er á fullu að leita að íbúðum hérna í Danmörku þar sem planið er að Karen og Daníel flytji hingað í janúar og það er talsvert erfitt ef við höfum enga íbúð til að flytja í. Eins gaman og það er að búa í hálfum gámi þá getur heil fjölskylda ekki búið þar :) . En já, ég er búinn að senda fullt af emailum, hringja útum allan bæ og skoða nokkrar íbúðir. Í upphafi vorum við með kröfur um að íbúðin væri nú ekki of langt frá DTU og ekki of dýr. Núna hinsvegar viljum við bara finna einhverja íbúð sem er  ekki lengra  en klukkutíma í burtu.  Þegar maður skoðar litlar íbúðir í Danmörku sér maður oft mjööög lítil baðherbergi. Þegar ég fór til Ebbu og Hilmars voru þau t.d. með baðherbergi þar sem vaskurinn var inní sturtunni, maður dró bara sturtuhengi kringum svæðið og það var sturtan. En í fyrradag sá ég ennþá minna baðherbergi, og það í íbúð sem er leigð út á 7900 danskar, u.þ.b. 100.000 isk. Baðherbergið var 1 fermetri, það var klósett, vaskur alveg við klósettið og sturtuhaus á veggnum. Ef maður vildi fara í sturtu þyrfti maður grínlaust að sitja á klósettinu meðan maður væri að sprauta yfir sig. Jafnvel þó ég geti séð hvernig það gæti verið tímasparandi í vissum tilfellum þá er það frekar óspennandi. Sérstaklega með Daníel, ég sé mig fyrir mér sitjandi á klósetti, haldandi á Daníel og sprautandi vatni yfir okkur.

En já, svo hringdi ég í dag að tékka á einni íbúð sem ég sá á netinu. Tala aðeins við manninn (á ensku, já, danskan mín er ekki frábær, danir yfirleitt segja bara ha þegar ég reyni að tala dönsku) og hann spyr mig hvaðan ég sé. Ég segi að ég sé frá Íslandi og þá segir hann mér að hann vilji ekki leigja neinum útlendingum! Nei, vegna þess að ef það yrði nú eitthvað vesen þá yrði nú erfitt að ná í mig á Íslandi. Ég reyndi að segja honum að ég byggi í Danmörku, væri í skóla og svona, en nei, ekki séns. Hann var samt voða vingjarnlegur meðan hann sagði mér að hann vildi ekki leigja mér, var svona hálf afsakandi, en stóð alveg fastur á þessu. Í Danmörku er samt standard að borga 3 mánuði í deposit + 3 mánuði í fyrirframgreidda leigu þannig að hann væri með 6 * 7000 dkr, u.þ.b. hálfa milljón íslenskar frá mér áður en ég flytti einu sinni inn. En já, svona er þetta. Ég held áfram að leita og finn vonandi eitthvað fyrir 17. des

Það er stanslaust verið að segja manni að maður eigi að borða nóg af grænmeti og ávöxtum. “Helmingurinn af disknum á að vera grænn!”, “Tófú borgarar eru alveg jafn góðir og Burger King!” “Agúrka bjargar lífum”. Þetta er allt kjaftæði. Ég fór í 10-11 í gærkvöldi að kaupa mér eitthvað að borða. Í einhverju stundarbrjálæði [sem verður EKKI endurtekið] ákvað ég að það væri nú fínt að fá sér bara box úr salatbarnum, fylla það af allskonar grænmeti og pasta og vera svaka heilbrigður. Ég var meira segja svo duglegur að ég keypti bara Brazza til að drekka með, ekkert gos eða neitt svoleiðis. Jæja, fór heim, borðaði þetta, rosa ánægður með að vera svona heilbrigður.

Síðan í morgun vakna ég og mér líður eins og skít. Flökurt, með beinverki og bara slappur. Ákvað samt að láta reyna á að fara í vinnuna, skutlaði Daníel og Karen en þegar ég var búinn að því leið mér ennþá verr. Kom við í 10-11, keypti ostaslaufu og kók og fór síðan heim. Þar ældi ég þrisvar, lagði mig, leið ennþá eins og skít, ældi tvisvar í viðbót og er núna liggjandi uppí sófa bíðandi eftir næstu ælu. Ég hef oft farið í nammibarinn, hef aldrei orðið veikur af honum, en salatbarinn er bara instant gubbupest! nammi > salat! Þannig að, núna verður ekkert meira grænt. Helmingurinn af disknum verður kjöt, hinn helmingurinn af disknum verður meira kjöt, ekkert #”$%&$#%& grænmeti!! :S:S:S

Þegar ég var lítill þá voru bara tvær gerðir af páskaeggjum, frá Nóa Siríus og Mónu. Nói Siríus var samt alltaf aðal, Mónuegg voru alltaf í öðru sæti, þó það mætti notast við þau í neyð. Núna hinsvegar eru komin páskaegg frá fullt af framleiðendum í allskonar stærðum og gerðum, t.d strumpaegg, púkaegg og Harry Potter egg. Mér finnst þetta farið ansi langt frá því sem páskarnir snúast um! Ég man a.m.k. ekki eftir neinum strumpum í Biblíunni (reyndar hef ég ekki lesið hana, en ég er nokkuð viss um að það eru engir strumpar þar, það kæmi mér mjög á óvart). Annað sem er asnalegt eru stærðirnar á páskaeggjunum í dag. Allir framleiðendur ættu auðvitað að fylgja metrakerfinu eins og Nói Siríus, en nei, sumir framleiðendur eru allt í einu bara með páskaegg nr. 9 sem er minna en páskaegg nr. 6 frá Nóa Siríus! Hvernig á maður eiginlega að bera svona saman til að ákveða hvað maður á að kaupa? Þetta er bara rugl! En sem betur fer þarf ég ekki að pæla í þessu þar sem ég fékk gefins ekta páskaegg frá vinnunni, Nóa Siríus egg nr. 4 með unga ofaná :).

Einhver krapp bot frá http://vefsofnun.bok.hi.is kom inná síðuna mína og skildi eftir tóm comment á hverja einustu færslu á forsíðunni. Galli í síðunni hjá mér að GET fyrirspurnir á commentasíðuna geta skráð tóm comment. Búinn að laga það núna en þurfti fyrst að henda út 15 tómum commentum!

Var í 10-11 áðan. Sá þá á forsíðunni á DV strák sem ég kannaðist við einu sinni og fyrirsögn um að hann hefði verið laminn og legið rænulaus í götunni. Kíkti í blaðið og las greinina. Það var alveg rétt sem stóð framan á, hann hafði verið laminn, var meðvitundarlaus og lá í götunni… …FYRIR MÖRGUM ÁRUM!! Jamm, þá reyndist fréttin vera um hvaða götuhorn í Reykjavík væri hættulegast og flestir verið lamdir og hann var bara tekinn sem dæmi. Þetta er auðvitað snilldar blaðamennska, endurnýta bara fréttir ef það vantar eitthvað á forsíðu! Ég sé fyrir mér næst þegar vantar eitthvað á forsíðuna:

MANNSHVÖRF! TVEIR MENN TÝNDIR!

Og svo þegar les sjálfa fréttina þá byrjar hún á “2 menn, Guðmundur og Geirfinnur, hurfu fyrir 25 árum…”.

Fór með Gísla á bíó í gær. Ætluðum að fara á King Kong en misstum af henni kl. 9 og þar sem hún er u.þ.b. 4 sólarhringa löng þá nenntum við ekki að fara á hana kl. 10. Fórum á Hostel í staðinn, hún var fín, miklu betri en ég bjóst við. Sáum nokkra trailera á undan, flesta fyrir grínmyndir sem ég hef engan áhuga á. Áður en lengra er haldið þá eru hér 3 hlutir sem benda til þess að grínmynd sé léleg:

  1. Karlar í konufötum

    Hversu oft getur maður hlegið að sömu þreyttu bröndurunum um karla í kjólum? “HAHAHA, hann er að RAKA Á SÉR LAPPIRNAR!!” Neibb, ekki fyndið.

  2. Grannir leikarar í fitubúningum

    Sumum virðist finnast það fyndnasta í heimi að sjá fólk sem er grannt og fallegt í risastórum fitubúningum. “HAHAHA, það er eins og hann sé FEITUR!!”. Hvernig væri að leyfa bara feitu fólki að fá feitafólkshlutverkin í myndum?

  3. Framhaldsmyndir

    Í 95% tilfella eru framhaldsmyndir helmingi ófyndnari en upprunalegu myndirnar og það er engin önnur ástæða fyrir þeim en að græða peninga. American Pie myndirnar eru gott dæmi um þetta.

Og hvaða mynd ætli ég hafi svo séð auglýsingu fyrir? Jamm, Big Momma’s House 2! Mynd sem tekst að sameina alla verstu hlutina við grínmyndir í einni mynd. Framhaldsmynd um grannan karl sem þykist vera feit kona!

p.s.

Sá líka auglýsingar um tvær nýjar Steve Martin myndir, Cheaper By The Dozen 2 og Pink Panther. Steve Martin minnir mig á “Grínkonuna” í Stelpunum: Alltaf hress, aldrei fyndinn!

Er með hálsbólgu. Fékk mér heitt te fyrir hálsinn. Það lítur út eins og hland! Nákvæmlega eins og hland! Það er eins og ég sé með þvagprufu í bolla hérna á borðinu mínu!

Hálsbólga er líka krapp veikindi! Ef maður er með magapínu getur maður a.m.k. nýtt það sem afsökun til að drekka fullt af kóki, því það var upprunalega ætlað sem magameðal. Ef maður er með hálsbólgu þá getur maður bara fengið Strepsils, sem eru ógeðslega vondir brjóstsykrar. Ég vildi að það væri eitthvað gott nammi eða gos sem hefði upprunalega verið ætlað sem hálsbólgumeðal!

Batman Begins logo
Fór á Batman Begins í gær. Snilldarmynd, jafnast á við Tim Burton Batman myndirnar og skrilljón sinnum betri en Batman Forever og Batman and Robin. Það eina glataða var að við sáum hana í sal 4 í Háskólabíó þar sem eru alltaf einhverjar truflanir, þegar ég sá The Incredibles þar þá voru hljóðtruflanir allan tímann og núna var gul lína lóðrétt yfir skjáinn svona helminginn af myndinni. Háskólabíó er drasl!

Eru ALLAR bandarískar sjónvarpsmyndir um miðaldra húsmæður að berjast við banvæna sjúkdóma? Eða keypti Skjár 1 bara einhvern pakka með svona myndum? Þetta er þriðji sunnudagurinn í röð þar sem er sjónvarpsmynd um þetta efni, fyrst Alzheimer með Miu Farrow, svo einhver mynd um ALS með gellunni úr Just Shoot Me og núna “At the End of the Day”, mynd um konu sem fréttir að hún á ár eftir ólifað. Og hvaða fólk er þetta sem hefur gaman af þessum myndum? Er í alvörunni fólk þarna úti sem hugsar “Já, ég hef mjög gaman af myndum um fólk sem er að veslast upp og deyja, það eru mínar uppáhaldsmyndir!”. Er ég að ætlast til of mikils að vilja fá einhverja sæmilega afþreyingu á sunnudagskvöldum???

Fór með mömmu í dag uppí Símann til að fá gsm síma fyrir hana og ADSL fyrir hana og pabba. Það tók sinn tíma þar sem þau eru með allt sitt hjá Símanum og við þurftum að velja hverskonar tilboðspakka og afslætti þau vildu nýta sér. Síminn er svo svakalega að reyna að sníða tilboðin að þörfum fólks að fyrir hvern síma á heimilinu þarf maður að velja úr u.þ.b. 5.000 mismunandi möguleikum. Ef maður hringir mikið úr gemsanum sínum í útlenskan heimasíma á kvöldin milli 8 og 10 hentar vel að taka leið 435a því þá fær maður 200 mínútur fríar og 25% afslátt af mínútugjaldi, ef hinsvegar maður hringir mikið með vinstrihendi í eldriborgara á Sauðárkróki þá er leið 534c sniðin fyrir mann því þar fær maður 17,3 % afslátt á mínútugjaldi milli 13:30 og 17:45, 140 mínútur fríar á morgnana og ókeypis derhúfu. Að sjálfsögðu geturðu svo slegið inn 11 á undan erlendum númerum til að fá 25% extra afslátt, þ.e. ef þú vilt vera í 1100 klúbbnum. Þegar maður er svo með 2 gemsa, 1 heimasíma og ADSL þá er hægt að gera svona skrilljón mismunandi samsetningar úr þessu öllu saman. Ég er nokkuð viss um að ef maður væri nógu sleipur í að velja réttu samsetninguna þá myndi enda með því að Síminn væri farinn að borga manni fyrir að hringja. Ég get ekki annað en hugsað að kannski væri einfaldara og þægilegra fyrir alla ef Síminn mundi sleppa öllum þessum skrilljón mismunandi möguleikum og gera eitthvað einfaldara í staðinn, t.d., hmmmmm, lækka mínútugjaldið almennt???