Ég hef nú oft vælt um það að ég þurfi að fara að stunda íþróttir en lítið hefur gerst í þeim málum. Núna hinsvegar er ég búinn að stunda íþrótt á hverjum virkum degi í meira en mánuð, bæði fyrir og eftir hádegi! Þessi göfuga íþrótt er að sjálfsögðu pílukast! Á hverjum degi tek ég einn leik við Hrannar fyrir hádegi og einn eftir hádegi. Þetta er reyndar spes leikur sem gengur útá að hitta þrisvar í 18, 19 og 20 og tekur svona tæpar 10 mín, við erum ekki að taka alvöru leiki því það tæki alltof langan tíma. Ég hef aðeins verið að taka saman stöðuna og hún er núna 63 – 2 fyrir Hrannari.
Ég finn líka alveg muninn á mér eftir að ég byrjaði þessa öflugu íþróttaiðkun, margir líkamspartar orðnir sterkari og liðugri, t.d. … öh, olnboginn á hægri hendi og… hmmm.. já, olnboginn á hægri hendi. Hann er orðinn mjög sterkur! Pílukast er nú eiginlega bara ein hreyfing, halda hendinni uppi og hreyfa svo framhandlegginn um 45 gráður. En núna get ég farið að taka íþróttaiðkunina uppá næsta stig, því nú er komið foosball borð hérna í Libra! Pílukast OG foosball, ég er orðinn algjör íþróttaálfur…
Alda systir heimtar að ég skrifi eitthvað hérna. Mér dettur reyndar ekkert í hug til að skrifa um þessa dagana þannig að ég bjó til lista yfir það sem hefur verið að gerast síðasta mánuðinn. (Já mér finnst listar góðir. Ég er einhverfur)
Svo er náttúrulega fullt að frétta af Daníel en það má lesa um það á síðunni hans.
Líkamsræktarátakið er ennþá í fullum gangi og gengur vel. Er farinn að geta hlaupið meira en einn hring kringum Miklatún og er hættur að fá harðsperrur eftir að ég fór að gera nóg af teygjuæfingum fyrir og eftir skokkið (þó ég geri þær að sjálfsögðu ekki upp við ljósastaura, heldur heima hjá mér, með dregið fyrir, inní skáp). Ég er líka búinn að minnka nammiátið niður í tvisvar í viku, þannig að nú borða ég bara nammi á virkum dögum og um helgar. Karen benti mér á að það eina sem mig vantaði núna væru góðar tröppur til að hlaupa upp þegar ég væri að klára skokkið, eins og Rocky gerði alltaf. Þetta finnst mér snilldarhugmynd sem mundi gera skokkið a.m.k. 200% meira töff! Það eru reyndar tröppur hjá húsinu mínu en þær eru u.þ.b. 5 talsins og liggja niður þannig að það er enginn rosalegur hápunktur á skokkinu að hlaupa þær. Karen sagði mér að hlaupa til Akureyrar því þar væru fínar tröppur fyrir mig en þar sem það er víst fulllangt í burtu þá auglýsi ég hér með eftir góðum tröppum hér í Reykjavík til að hlaupa upp. Og já, ef einhver á theme-ið úr Rocky á mp3 þá væri það vel þegið
Þegar ég vaknaði í morgun var ég sannfærður um að ég væri lærleggsbrotinn á báðum löppum þar sem ég var með þvílíka verki í þeim og gat varla labbað. Ég skildi ekki almennilega hvernig ég hafði lærleggsbrotnað meðan ég var sofandi en eftir að hafa kynnt mér málin á netinu kom í ljós að ég er alls ekki brotinn heldur er ég víst með eitthvað sem kallast “harðsperrur”. Þessar svokölluðu “harðsperrur” eru víst eitthvað sem maður fær af að skokka. Af hverju lét enginn mig vita af þessu???
Líkamsræktarátakið er hafið! Þrátt fyrir góðar tillögur í kommentakerfinu þá urðu hvorki Líkami fyrir lífið né amfetamínsterar fyrir valinu. Nei, ég ákvað að skokka frekar í kringum Miklatún enda fátt hollara en að hlaupa á meðan maður andar að sér útblæstrinum frá 1000 bílum á Miklubrautinni. Eins og alþjóð veit þá er ég mjög kúl maður en skokk er afturámóti eitthvað það allra plebbalegasta sem maður getur mögulega gert. En með ákveðnum aðferðum er hægt að skokka og halda samt kúlinu. Svona er það gert:
Í næstu viku: Hvernig á að fara í líkamsræktarstöðvar án þess að fólk fatti að maður sé að æfa.
Þá er Daníel Máni orðinn mánaðar gamall! Tíminn líður ekkert smá hratt! Heill mánuður án þess að fá að sofa samfleytt heila nótt
. En það er bara gaman. Vildi bara að ég gæti skrifað forrit sem léti börn sofa!
Fyrir nokkrum mánuðum var ég að pæla í hvaða líkamsræktarprógram mundi henta mér. Enn hefur ekkert gerst í þessum málum en nú verð ég að fara að taka mig á. Þannig að ef einhver getur mælt með einhverri líkamsræktarstöð eða einhverju svona prógrammi (ekki samt einhverjum svona viðbjóði þar sem maður borðar sellerí í öll mál og má bara borða nammi á fullu tungli eða eitthvað ) þá endilega benda mér á það.
Fótbolti á Skjá einum. Þoli ekki íþróttir! Íþróttir eru bara bóla, bóla sem á eftir að springa! Ég spái því að eftir nokkur ár muni enginn muna eftir þessum “íþróttum”…
Nú hef ég í soldinn tíma, u.þ.b. 10 ár, verið á leiðinni að koma mér í gott form. Í þessi 10 ár hef ég pælt mikið í því hverskonar líkamsrækt henti mér best. Eftir 10 ára umhugsun hef ég komist að því að það þarf að vera eitthvað sem reynir ekki mikið á og krefst þess ekki að ég hætti að borða nammi. Þarna er ég búinn að útiloka 97% af öllum íþróttum þannig að þetta er allt að koma. Nokkrar af þeim íþróttum sem ég hef íhugað að fara að stunda eru:
Ef einhver hefur góða hugmynd um líkamsrækt sem hentar mér, endilega láta mig vita. Og nei, mig langar ekki að fara í líkamsræktarstöð að lyfta eða hlaupa eða eitthvað svona grjótleiðinlegt, þetta verður að vera skemmtileg íþrótt.
Ég var að horfa á Discovery áðan. Þá sá ég auglýsingu um nýjan þátt sem heitir “Extreme Engineering”. Hmmm. “Engineering” finnst mér ekki hljóma spennandi en fyrst þetta er “Extreme Engineering” þá hlýtur það að vera cool. Allt sem er “Extreme” er cool, maður getur tekið hvaða hlut sem er, sett “Extreme” fyrir framan nafnið og þá verður hann meira cool. T.d. Extreme Sports, Extreme Makeover, Extreme Programming, Extreme Engineering, Extreme Robot Fighting…
Nú vita allir að íþróttir eru grjótleiðinlegar og hundleiðinlegt að horfa á þær. En það væri auðveldlega hægt að gera fullt af íþróttum miklu skemmtilegri með því að gera þær aðeins meira “Extreme”. T.d:
Þetta væri líka hægt að gera við sjónvarpsþætti. Gott dæmi er Extreme Makeover. Enginn mundi horfa á hann ef hann væri bara “Makeover”. Nú horfir enginn sem er með greindarvísitölu hærra en skónúmerið sitt á Innlit/Útlit. En!! Hver mundi ekki vilja sjá “Extreme Innlit/Útlit”: Vala Matt á amfetamíni brýst inn til óviðbúins fólks um miðja nótt:
zzzzzzzZZZZZZZZZZzzzzZZZZZ*CRASH* “GASALEGA ER ÞETTA SKEMMTILEGT RÝMI HÉRNA HJÁ YKKUR!!” “Hva, hver…” “KEYPTUÐ ÞIÐ ÞETTA RÚMTEPPI Í IKEA? ÞETTA ER *ÆÐISLEGT*”.