Posted by einar
on apríl 25, 2005
Forritandi án hjálms. Ekki töff!

Forritandi með hjálm. Töff!

Forritandi með svarthöfðahjálm. Mest töff!!
Snilldarhelgi. Fórum í vísindaferð á föstudaginn í Landsteina-Streng. Síðast þegar við fórum þangað fyrir 2 árum sögðu þeir okkur frá því að þeir væru með forritara út um allan heim, meðal annars á einhverju átakasvæði í Kúveit þar sem þeir væru forritandi með hjálma. Ég og Bjarni erum búnir að tala oft síðan þá um hversu svalt það væri að fá að forrita með hjálm en því miður sögðu þeir okkur núna að það væru engir forritarar hjá þeim í Kúveit lengur. Finnur sagði samt að Libra væri alveg opið fyrir því að leyfa okkur að forrita með hjálma þannig að ekki er öll von úti enn.
Eftir vísó var svo partý í einhverjum sal í skeifunni þar sem var brjáluð kelling sem átti salinn, var skúrandi dansgólfið meðan fólk var að dansa og reif af manni glös og bjórdósir um leið og maður setti það niður eftir síðasta sopann.
Á laugardaginn var svo afmælispartý hjá Bjarna sem var mjög fínt, hitti meðal annars Eggert, gamlan skólafélaga sem er orðinn yfirkokkur á fínum veitingastað og er búinn að vinna sem kokkur í London og New York. Fórum síðan í bæinn, fór með Bjarna, Grím og Vigga á 11, Kaffibarinn og Sirkus (”What a shitty circus, there’s no animals or clowns!”, hver þekkir kvótið? ). Endaði svo á að fá mér Kebab með Hrannari áður en ég fór heim.
Eyddi síðan gærdeginum í leti. Svo var Skjár 1 að sýna Dirty Harry um kvöldið þannig að það var snilld. Vantaði einhverjar góðar sunnudagsmyndir síðan Rocky hætti, Bleiki pardusinn var ekki alveg að gera sig. Clint Eastwood er náttúrulega mesti töffari á jörðunni, jafnvel þó hann hafi verið í köflóttum jakka. Snilld!
Posted by einar
on mars 21, 2005
Hrannar fann .NET library á netinu um daginn sem leyfir manni að tala við MSN protocol-ið. Ég notaði það til að búa til smá msn bot sem maður getur talað við. Bottinn er mjög heimskur en hann getur samt pikkað upp nokkra hluti, t.d. ‘hvað heitirðu?’, ‘hvað ertu gamall?’, spurningar sem byrja á ‘ertu’, t.d. ‘ertu vélmenni?’ og setningar sem byrja á ‘þú ert’. Skilur líka blótsyrði, setningar sem enda á ‘?’ og nokkra aðra hluti en fyrir utan það svarar hann algjörlega random. Þeir sem vilja prófa að tala við hann geta addað einarbot@hotmail.com á msn hjá sér og prófað að segja hæ við hann.
Posted by einar
on mars 15, 2005
Fyrir þá sem eru að gera þjöppunarverkefni í Stærðfræðilegum Reikniritum þá er þessi síða snilld: http://neopoleon.com/blog/posts/2493.aspx. Sá link á hana á síðunni hjá Sverri í fyrra þegar þetta verkefni var í gangi, er nokkuð viss um að hún eigi eftir að koma að góðu gagni!
Posted by einar
on febrúar 25, 2005
Henti út póstforritinu sem ég setti inn í gær þar sem ég komst að því að það virkaði bara á local neti :(. Laga það kannski einhverntímann seinna ef mér leiðist.
Posted by einar
on febrúar 16, 2005
Fyrsta verkefnaskoðun búin :). Nú er bara að forrita ákvarðanatökutré og tauganet fyrir stærðfræðileg reiknirit og svo multicast verkefni í Dreifðum kerfum. Stuð.
Posted by einar
on febrúar 12, 2005
Ágætis vísindaferð í gær, fórum í Nýherja. Fengum 3 fyrirlestra, einn um SAP kerfið frá einhverjum yfirmanni sem var allt í lagi, einn góðan frá forritara um low level dótið í kerfinu sem hann sagði að væri mjög þýskt og maður gæti rekist á breytunöfn eins og “der fuhrer” og að lokum fengum við einn fyrirlestur frá einhverjum super slick jakkafatagaur um hvernig .NET væri framtíðin og hvernig við ættum að haga okkur til að fá vinnu. Reyndum að fara í smá drykkjuleik í fyrsta fyrirlestrinum, drekka þegar gaurinn sagði SAP en gáfumst eiginlega strax upp þar sem hann sagði SAP álíka oft og strumparnir segja strump. “SAP kerfið er geysiöflugt, við höfum SAP-forritara og SAP-ráðgjafa sem kenna SAP-viðskiptavinunum á hina ýmsu hluta SAP, t.d. mannauðsSAP, logisticsSAP, accountingSAP og fleiri SAP-hluti. Endilega fáið ykkur smá bjórSAP meðan þið hlustið á SAP-fyrirlesturinnSAP.”
Fórum svo í sal þar sem var haldið áfram keppninni OfurNjörður 2005 við HÍ. Vorum búin að vinna í fótbolta og dodgeball fyrr um daginn. Unnum í vélritun, töpuðum í Singstar,Eyetoy og Twister. Eyetoy er definitely mest dull drasl ever, a.m.k. þessi leikur sem var keppt í þarna. Töpuðum svo bjórdrykkjukeppninni sem er nú helvíti slappt og enduðum á því að tapa OfurNjerði. Gengur bara betur næst…
Posted by einar
on janúar 10, 2005
“So what do they mean when they say that people who share software are pirates? They are saying that sharing software is the same thing as attacking a ship.”
Kvót frá GNU töffaranum Richard Stallmann, en ég fór einmitt á fyrirlestur hjá honum um open source og free software í staðinn fyrir að fara í stærðfræðileg reiknirit í dag. Hann var mjög töff hugbúnaðarhippi með gleraugu, sítt hár og skegg, og í mjög litskrúðugri skyrtu þannig að hann er augljóslega góður forritari. Hafði miklar meiningar um að hugbúnaður sem er ekki ókeypis og open source væri af hinu illa og að við ættum bara að nota “free software”. Er greinilega ennþá mjög bitur yfir því að Linus Torvalds fær allt kreditið fyrir Linux, sem Richard Stallmann vill að sé kallað GNU/Linux. Hef aldrei séð jafnmikið af nördum á einum stað, og allt strákar!! Hámark 2 stelpur þarna. Verður víst annar fyrirlestur á morgun um “software patents”, sé til hvort ég nenni á hann.
Posted by einar
on desember 14, 2004

Jæja, erum enn hérna um miðja nótt að gera vefþjónustur. Erum 4 í hópnum, ég, Hrannar, Finnur og Bjarni en við hefðum ekki getað gert þetta án 5. leynimeðlimsins sem er hinn geysiöflugi indverski forritari Sreejith SS Nair. Sreejith skrifaði mjög fínan Datagrid component sem Bjarni notaði í winclient-inum okkar, en þennan component má finna á CodeProject.com ásamt fleiru sem Sreejith hefur gert. Hann er mjög hress gaur sem hefur póstað 783 sinnum á CodeProject á síðustu 10 mánuðum og helsta áhugamál hans samkvæmt síðunni hans er einmitt “I like to love C#.NET”. Sreejith vinnur hjá Neosoft en þeirra mottó er:
Are you Solving problems
or Having problems
Solving them
Ég þurfti að lesa þetta svona 5 sinnum til að skilja. Meikar samt sens þegar maður fattar það
. Ég vill hérmeð þakka Sreejith fyrir hans framlag.
Posted by einar
on nóvember 21, 2004
[Bara fyrir nörda:]
Þegar við vorum í Gagnaskipan hjá Hallgrími áttum við einhverntímann að útfæra strcpy fall í C++. Mín útfærsla var einhvernveginn svona:
void strcpy(char[] dest, char[] src)
{
int len = strlen(src);
for (int i = 0; i < len; i++)
{
dest[i] = src[i];
}
dest[len] = '\0';
}
Frekar klunnalegt eitthvað. Svona er alvöru útfærslan í string.h, 1 lína:
void strcpy(char* dest, char* src)
{
while (*dest++ = *src++);
}
…ég á greinilega ýmislegt eftir ólært 
Posted by einar
on nóvember 15, 2004
Fyrsta prófið búið og gekk nokkuð vel. Þarf núna aldrei framar að forrita í Scheme, SML, Smalltalk eða Prolog. 