Danmörk - Dagur 0 og Pólland

Posted by einar on ágúst 24, 2007

Jæja, það er svo mikið að skrifa núna að ég ákvað að skipta því í tvö blogg, eitt um daginn í Danmörku á leiðinni til Póllands og Póllandsferðina, og eitt um alvöru fyrsta daginn í Danmörku sem var í dag.

17. ágúst fórum við út. Ég var ekki samferða Karen og Daníel því við áttum nóg af frípunktum til að láta Daníel fljúga frítt með Icelandair, en one-way-ticket hjá þeim er fáránlega dýrt þannig að ég fór með Iceland Express í staðinn. Flugið mitt fór kl. 7 um morguninn og lenti kl. 12 í Danmörku. Skrýtið að fljúga einn, hef aldrei gert það áður. Þegar ég lenti rauk ég síðan beint í lestina þvi ég þurfti að ná uppí DTU fyrir kl. 14 til að ná í lyklana fyrir húsnæðið mitt og skilja eftir eitthvað af faranginrum. Þegar ég kom á Köbenhagen Central Station fór ég svo bara og fékk mér leigubíl, því ég hafði engan tíma til að vera að leita að réttri lest eða strætó til að fara til DTU. Spjallaði aðeins við leigubílstjórann, spurði hann um Lyngby. Hann sagði að það væri nú soldið stórt, væri am.k. ‘not a village’ eins og hann orðaði það, og sagði að það væri ekki beint partur af Kaupmannahöfn sjálfri, en væri partur af stór-Kaupmannahöfn. Soldið svona eins og Hafnarfjörður fyrir okkur eða eitthvað. Ég náði svo í lykilinn og skoðaði herbergið mitt. Þetta eru svona nokkurskonar rauðir vinnuskúrar sem eru festir nokkrir saman, það búa 9 aðrir með mér og við höfum sameiginlegt bað og eldhús. Þetta virkaði bara snyrtilegt og fínt. Rauk svo aftur til Köben að hitta Karen og Daníel, við fengum okkur aðeins að borða í bænum og flugum svo til Póllands.

Í Póllandi vorum við svo í góðu yfirlæti í viku. Við vorum á hóteli í gamla bænum sem var bara fínt. Fórum nokkrum sinnum í mat til Hönnu og nokkrum sinnum til Ellu, Gregoz og Pálinu. Vorum bara að þvælast á daginn, fórum oft með Daníel á frábæran róló sem var rétt hjá Hönnu, fórum líka í konunglega garðinn þar sem er allt fullt af fiskum í tjörnunum, og fullt af páfuglum. Það var mjög fínt og Daníel duglegur að hlaupa þarna um allt. Við fórum svo tvisvar í dýragarðinn. Í fyrra skiptið var Daníel svo þreyttur að hann svaf af sér öll spennandi dýrin þannig að við fórum aftur á afmælinu mínu og leyfðum honum að sjá ljónin, tígrisdýrin og öll kúl dýrin. Hann var nú samt eiginlega hrifnastur af öpunum.

Afmælið mitt var daginn áður en ég fór til Danmerkur og við eyddum góðum parti af deginum í dýragarðinum, komum svo aðeins við í H & M að versla og fórum svo í mat til Ellu og Gregoz. Þar fékk ég fullt af afmælisgjöfum, fékk Vodkaflösku frá Hönnu og sokka, belti og 5 hryllingsmyndir frá Ellu, Gregoz og Pálínu. Svo bara heim á hótel að pakka, þar sem ég þurfti að vakna kl. 4:45 daginn eftir. Karen og Daníel verða þarna í viku í viðbót og koma svo til mín einn dag í næstu viku og fara svo heim. Ég segi svo frá fyrsta Danmerkurdeginum í næsta bloggi  :)

Bor! Og fleira… 2

Posted by einar on ágúst 03, 2007

Síðan ég flutti að heiman fyrir 7 árum hef ég reglulega þurft að fá lánaða borvél hjá pabba til að setja upp hillur o.þ.h. En í gær varð ég að manni: ég keypti mér mína eigin borvél! Fátt er karlmannlegra en að kaupa sér bor! Á karlmennskuskalanum frá 0 - 10 (þar sem 0 er að horfa á America’s Next Top Model og 10 er að veiða skógarbjörn með berum höndum) þá hljóta borvélarkaup að vera a.m.k. svona 8! Ég keypti borinn í gær, þegar ég vaknaði í morgun var ég kominn með 50% meira hár á bringuna! Í gær og í dag er ég svo búinn að hlaupa um alla íbúð og bora allt sem þarf að bora, sem ég er venjulega mjög latur við að gera. En að öllu gríni slepptu þá er tvennt við þessa borvél sem ég er mjög ánægður með:

  1. Hún er soldið eins og byssa
  2. Hún gefur frá sér mikinn og karlmannlegan hávaða

Annars er bara að styttast í að ég fari til Danmerkur. Við förum öll saman til Póllands 17. ágúst og verðum þar á hóteli í Varsjá. Ég fer síðan 24. ágúst til baka til Danmerkur en Karen og Daníel verða í Póllandi til 30 ágúst. Ég er búinn að fá herbergi á campus fyrstu önnina og er á biðlistum eftir stúdentaíbúðum eftir jól. Daníel og Karen koma svo til mín um áramótin. Ég var að klára að velja áfangana fyrir fyrstu önnina í gær og ég verð í fríi á föstudögum og byrja eftir hádegi á mánudögum þannig að það verður auðvelt að skjótast heim um helgar.

Ég er líka kominn með hlutastarf úti með skólanum, verð að vinna hjá Microsoft. Þeir eru víst með 900 manna starfstöð þarna. Fékk póst frá þeim snemma í sumar þar sem þeir báðu mig og nokkra aðra að sækja um, DTU hafði víst bent þeim á nokkra nemendur. Ég sendi þeim CV og letter of presentation og fór svo í mitt fyrsta símaviðtal ever, og á ensku í þokkabót. En það gekk allt vel og ég fékk starfið, verð að vinna þar svona 10-15 tíma á viku með náminu.

Hvað fleira? Fórum í útilegu síðust helgi og vorum næstum eina fólkið í tjaldi á svæðinu, allir í hjólhýsum eða tjaldvögnum á risajeppum. Einhverjir ofdekraðir krakkar komu upp að okkur og spurðu okkur:

“Eruð þið bara í tjaldi??? Er ykkur ekki kalt??? Eruð þið FÁTÆK???”

“Hefur mamma þín aldrei kennt þér að tala ekki við ókunnuga?”

Hefði ég átt að segja. Í staðinn sagði ég “uuhh, hérna, nei”, (jamm, ég er king of the comebacks!). Karen skrifar meira um þetta og fleiri sem komu að dást að tjaldinu okkar þarna.

Og þá held ég að ég sé búinn að segja frá flestu sem er búið að gerast undanfarið. Nema 2 vikna Búlgariuferðinni okkar. Kannski seinna.

Amsterdam 5

Posted by einar on apríl 08, 2007

Vincent: You know what they put on French fries in Holland instead of ketchup?
Jules: What?
Vincent: Mayonnaise.
Jules: Goddamn.
Vincent: I’ve seen ‘em do it, man. They fucking drown ‘em in that shit.

Vorum að koma heim frá Amsterdam. Ég og Karen fórum bara tvö, Daníel var hjá mömmu og pabba á meðan. Amsterdam var snilld! Við vorum á litlu hóteli, Hotel Wiechman, sem var rétt hjá miðbænum. Það var frekar ódýrt, hreint og fínt, góður morgunmatur og vinalegt starfsfólk. Þeir voru líka með fallbyssu í lobbýinu sem er alltaf kostur. Við komum til Hollands á fimmtudaginn, fórum með draslið á hótelið og svo beint út að labba um bæinn og skoða okkur um.  Við fórum svo að versla í aðal verslunargötunni og um kvöldið fórum við að leita að einhverjum skemmtilegum pöbb. Fengum okkur bjór á einum en það var nú ekki mjög spennandi staður. Hollendingar eru annars voða fínir. Allir tala ensku, þeir eru voða frjálslyndir, útum allt eru endalausir minjagripir og tól tengd hassi, í minjagripabúðum er allskonar dót tengt klámi og rauðahverfinu. og svo eru þeir með snilldar útiklósett fyrir kalla þar sem maður stendur bara úti og pissar í svona smá skál, snýr bara baki í vegfarendur.

Á föstudeginum kíktum við á markað á Waterlooplein og leigðum okkur svo hjól. Það eru ALLIR á hjóli í Amsterdam. Það er ekkert þarna nema hjól og síki! Hjóluðum í dýragarðinn og vorum þar heillengi, fórum svo aðeins aftur að versla og fengum okkur svo kebab. Fórum svo að djamma aðeins um kvöldið og komumst að því að við höfðum verið á bandvitlausum stað kvöldið áður. Aðalstaðurinn var Leidseplein, þar var allt fullt af klúbbum og fólki. Við enduðum á að fara á comedy show á stað sem hét Boom Chicago. Þetta var svona spunasýning með bandarískum leikurum. Þeir báðu áhorfendur um orð og frasa sem þeir notuð síðan í atriðum og lögum og maður fékk frían bjór ef þeim leist vel á tillöguna. Karen fékk einn frían bjór fyrir orðið ‘waterbed’.

Á laugardaginn fórum við svo til Antwerpen að heimsækja Öldu og Wannes. Þau sýndu okkur Antwerpen og við borðuðum kvöldmat hjá þeim. Vorum svo bara heima hjá þeim um kvöldið í góðum fíling með þeim og vinum þeirra sem ég hef ekki glóru um hvernig á að skrifa nöfnin á. Tókum síðan góðan páskamorgunmat í morgun, svo bara lest, flugvél, rúta, bíll og komin heim. Snilldarferð í alla staði!

Árið 2006 3

Posted by einar on janúar 05, 2007

Jæja, best að skella inn smá áramótayfirliti, eins og ég gerði í fyrra. Hvað gerðist á árinu 2006?

  • Hætti að vinna hjá TM Software og byrjaði að vinna hjá OMX. Þetta hafði nákvæmlega engin áhrif á daglega starfið hjá mér, OMX keypti bara deildina mína. Ef maður lítur á tímalínuna varðandi þessa yfirtöku þá er hún nokkurnveginn svona:
    1. Libra starfar í rólegheitum á Íslandi
    2. Ég hef störf hjá fyrirtækinu
    3. Risastórt erlent fyrirtæki sýnir Libra mikinn áhuga og endar á að kaupa það

    Tilviljun? Læt aðra um að dæma um það.

  • Daníel byrjaði hjá dagmömmu snemma á árinu. Dagmamman er mjög fín og það gengur vel
  • Við keyptum nýja íbúð í Svarthömrum í Grafarvogi. Tvöfalt stærri en Guðrúnargatan, víðáttubrjálæði, mjög fínt.
  • Daníel varð eins árs í júní
  • Eins árs brúðkaupsafmæli í ágúst.
  • Fór til Svíþjóðar að hitta sænsku samstarfsfélagana í byrjun september
  • Karen í lokaverkefni í allt haust, brjálað að gera en stóð sig mjög vel. Var samt mjög feginn þegar það varð búið
  • Önnur jólin hans Daníels, fékk u.þ.b. 65535 pakka. Ekki mjög spenntur fyrir að opna þá, vildi helst bara fara að leika sér í friði eftir fyrsta pakkann

Jamm, þetta er svona það helsta. Er svona að pæla í hvað ég ætla að gera við þessa síðu, hvort ég eigi bara að loka henni, eða hafa hana bara með einhverjum forritunarverkefnum og CV eða hvað. Ætli ég leyfi henni bara ekki að hanga uppi og skrifi inná hana svona 2svar á ári. Er bara að skrifa núna því ég nenni ekki að gera neitt sérstakt, var að enda við að horfa á The Bachelor, öhh, mjög töff ofbeldismynd í sjónvarpinu og nenni ekki að horfa meira á það. Fór að skoða áramótapistilinn síðan í fyrra og datt í hug að það væri gaman að skrifa einn fyrir 2006 líka. Þannig að, búist við næsta bloggi í byrjun janúar 2008 og gleðilegt ár!

Nýr gítar 2

Posted by einar on ágúst 20, 2006

Var að koma heim. Við vorum í sumarhúsi í Ögri á vestfjörðum sem Landsbankinn á. Það voru ég, Karen, Daníel, mamma, pabbi og pabbi hennar Karenar. Fínt að komast útfyrir bæinn þar sem ég og Karen erum ekkert búin að geta verið í fríi saman í sumar.

Ég á afmæli í næstu viku og við ákváðum að halda bara uppá afmælið á laugardeginum þarna fyrst við værum nú öll saman. Karen var búin að vara mig við að það væri stranglega bannað að kíkja í töskuna hennar þannig að ég bjóst nú við að ég fengi kannski einhverja smá afmælisgjöf. Svo á laugardagsmorguninn þá leyfði Karen mér að sofa út og svo þegar ég vaknaði rétti hún mér umslag. Ég opnaði það hálfsofandi og las á kortið. Þar stóð að þetta væri frá allri fjölskyldunni og með í umslaginu var blað með lýsingu á gítar! Ég stökk fram úr rúminu (sem var by the way koja þar sem ég var á efri hæðinni) og fór fram og þar beið eftir mér þessi gullfallegi Fender kassagítar! Þá hafði Karen verið búin að skipuleggja þetta allt saman með margra vikna fyrirvara og fengið alla til að taka þátt. Hún fór svo í vikunni, keypti gítarinn og fékk mömmu og pabba til að taka hann með uppeftir í sínum bíl. Gítarinn er þvílíkt flottur, ljós að framan, allur þvílíkt glansandi og hljómar þvílíkt vel! Ég er búinn að vera spilandi á hann uppí bústað (Daníel var soldið afbrýðisamur útí hann) og núna vantar mig bara einhver sniðug ný lög til að læra :) Jamm, ég á definitely bestu konu í heimi!

Fugl 3

Posted by einar on júlí 10, 2006

Karen: Finnst ykkur Alda ekki vera soldið þvoglumælt og full?

Alda: Ég er ekki fugl!!

Læknavaktin 5

Posted by einar on júní 19, 2006

[Þessi færsla birtist líka á síðunni hans Daníels, ég set hana líka hérna inn til að hafa eitthað efni hérna ;)]

Daníel er búinn að fara á 2 penicillin kúra útaf eyrnabólgu núna síðustu vikur. Seinni kúrinn var að klárast fyrir 3 dögum en við tókum eftir því í dag að hann var frekar pirraður og var svolítið að toga í eyrun á sér þannig að okkur datt í hug að eyrnabólgan væri komin enn og aftur. Við ákváðum að fara á læknavaktina til að vera viss, enda vill maður að hann fái meðferð sem fyrst ef eitthvað er að. Við höfum farið þarna nokkrum sinnum áður og lent á misgóðum læknum, en sá sem við lentum á í þetta sinn var nú eitthvað alveg nýtt. Hann skoðaði eyrun og sagði okkur að það væri væg eyrnabólga komin í annað eyrað. Hann vildi samt ekki vera að gefa meira penicillin því þetta væri rétt eftir síðasta kúr og þetta færi sennilega bara af sjálfu sér, það væri fínt að gefa honum bara verkjalyf. Síðan sagði hann okkur þessa stórkostlega upplífgandi og hughreystandi sögu:

Þegar strákurinn minn var svona tveggja ára þá var hann einu sinni ferlega pirraður eitthvað. Þetta var í miðju matarboði og ég var bara pirraður á stráknum og fannst hann vera óþekkur [ok, barninu leið illa og þú varst pirraður á því, gott mál]. Síðan að lokum neyddi konan mín mig til að líta á hann og þá sá ég að hann var með bullandi eyrnabólgu. Ég nennti ekki að fara og ná í meðal fyrir hann því þetta var um kvöld og það mátti alveg bíða til morguns þannig að við gáfum honum bara verkjalyf og létum hann fara að sofa. [Nú bjóst ég við að sagan myndi enda á að allt yrði í lagi, þannig að ég yrði rólegri um Daníel. En nei... ]. Síðan um morguninn, þá bara SPRAKK HLJÓÐHIMNAN Á HONUM YFIR ALLAN KODDANN!

Hver var tilgangurinn með því að segja okkur þessa sögu?!? Átti þetta að láta okkur líða betur? Þetta var versta mögulega saga sem hann hefði getað sagt okkur! Í framtíðinni ætlum við a.m.k. bara að fara á barnalæknavaktina í Domus Medica, höfum farið þar einu sinni og þar var mjög fínn læknir sem var ekki að segja neinar hryllingssögur!

Afmæli 2

Posted by einar on júní 17, 2006

Jæja, Daníel er orðinn eins árs. Við héldum afmæli fyrir fjölskylduna á sjálfan afmælisdaginn, síðasta þriðjudag og svo koma vinirnir á morgun. Barnaafmæli eru bestu afmælin því þá fær maður súkkulaðiköku með nammi, sem eru klárlega bestu kökurnar! Ætlum líka að grilla á morgun, vonandi hættir þessi %(#%”#$”@ rigning!

Nóg að gera í vinnunni, er kominn í gagnamál sem þýðir að ég þvælist um allan bæ og vinn hjá bönkunum. Kosturinn er að alla fimmtudaga er ég í Landsbankanum og get borðað með Karen í hádeginu. Ef það eru annars einhverjir HR-ingar eða aðrir tölvunarfræðingar að lesa þetta þá var OMX að auglýsa eftir forriturum og prófurum nýlega, þannig að endilega sækja um!

Kröfuganga 2

Posted by einar on maí 02, 2006

Arg! Daníel vaknaði kl. 5 í morgun og neitaði að fara aftur að sofa. Þetta þýðir að ég á eftir að drekka svona 10 lítra af kaffi hérna í vinnunni til að halda mér vakandi!

Ég, Karen og Daníel fórum í kröfugönguna í gær. Ég var reyndar ekki með neitt skilti, enda hef ég svosem ekki undan miklu að kvarta. Ég hefði kannski getað gert einhverjar kröfur til vinnuveitandans míns: Meira vinnsluminni! Flatari skjái! Annað foosballborð! En ég er nú bara nokkuð sáttur þannig að ég var ekkert að því. Hinsvegar fannst mér flottasta krafan sem ég sá vera á skilti hjá svona 6 ára strák: Tvo nammidaga í viku! Greinilega baráttumaður þar á ferð!

Einir heima 6

Posted by einar on apríl 16, 2006

Karen fór til Danmerkur yfir páskana að hitta Láru vinkonu sína. Ég og Daníel erum hérna heima að passa hvorn annan. Þegar Karen er ekki hérna til að halda aftur af nördinum í mér þá endar það alltaf á því að ég borða allt of mikið af ruslfæði, gosi og nammi, eyði skuggalega miklum tíma í að forrita einhver pet project og vaki fram eftir öllu hangandi í tölvunni eða horfandi á endursýnda þætti á Skjá einum. Einnig er ég hættur að fara í bað og búinn að kaupa mér Svarthöfðahjálm. (Ok, þetta tvennt síðasta er ekki satt, ég fer ennþá í bað. Ennþá…). Það er greinilegt að ég mundi aldrei höndla að búa einn! En Karen kemur aftur á þriðjudaginn og þá fara hlutirnir aftur í eðlilegt horf, það verður fínt!

p.s.

Já, klukkan er í alvörunni 6:51 um morgun þegar ég er að skrifa þetta. Daníel tekur ekkert tillit til þess þótt pabbi hans hafi farið seint að sofa. Við erum nú þegar búnir að borða, fara í bað, og núna er Daníel að æfa sig að labba meðfram hlutum. Morgunstund gefur gull í mund…