
Sýningin sem fram fer í Listasafni Íslands 2. mars til 17. mars er afrakstur vinnunar sem farið hefur fram á sex verkstæðum í fjórum skólum í Reykjavík frá september 1995 til mars 1996. Verkefnið samvinnuverkefni milli fimm borga: Tammerfors, Þránsheims, Málmeyjar, Reykjavíkur og Kaupmannahafnar. Í öllum borgunum eru starfrækt áþekk verkstæði en þau fást við: Manngert umhverfi, tölvuheim og samskipti, myndlist, kvikmyndun, tónlist og dans. Lokaþáttur verkefnisins mun fara fram sem einn liður í dagskrá Kaupmannahafnar, sem menningarborgar Evrópu, haustið 1996. Þangað verður öllu því unga fólki, sem unnið hefur að verkefninu, stefnt til að byggja upp sýningu undir verkefnaheitinu "Ett mångelkulturellt Norden år 2002" - borg framtíðarinnar.
Samtímis verða sýningar í öllum borgunum fimm og verða sýningarnar tengdar saman með myndsíma. Á fundi sínum í Reykjavík árið 1994 ákvað norræna ráðherranefndin að styrkja umrætt verkefni á veglegan háttt og er það stærsta framlag nefndarinnar til norrænnar barna- og unglingamenningar á tímabilinu. Verkefnið nýtur einnig stuðnings menntamálaráðuneytisins og Reykjavíkurborgar.