Geimstöðvar




Geimstöðvar verða margar og stórar. Þær verða bæði úti í geimnum og niðri á plánetunum. Sumar verða á sporbaug um plánetur en aðrar ekki. Geimstöðvar sem ekki verða staðsettar á plánetum verða hringlaga eins og sést á myndinni og þær munu snúast til að skapa þyngdarafl.

Geimstöðvarnar verða eins og borgir, með samgöngukerfum, skólum, skemmtanalífi, verslanamiðstöðvum, vinnustöðum og allri venjulegri þjónustu. Fólk mun búa þar rétt eins og það býr á jörðinni í dag. Geimstöðvarnar verða hreinar og ómengaðar þar sem notuð verður sólarorka til að framleiða rafmagn.

Í framtíðinni væri kannski möguleiki að flytja hinar harðgerðari plöntur jarðarinnar til annarra pláneta t.d. Mars og Venus. Á báðum þessara pláneta er andrúmsloft þó að menn geti ekki andað því að sér en ef plöntur væru gróðursettar þar gætu þær e.t.v. skapað vistvæn skilyrði með ljóstillífun þannig að hægt væri að búa á svalari svæðum Venusar og hlýrri svæðum Mars.




Smellið hér til að fara aftur á aðalsíðuna.