Geimskip




Í framtíðinni eiga geimskip eftir að taka miklum stakkaskiptum. Nú til dags eru geimskip lítil og þau eru langt frá því að vera hagkvæm. Einnig þarf mikla þjálfun áður en hægt er að ferðast með þeim og ferðirnar eru mjög áhættusamar. Þetta á allt eftir að breytast. Geimferðir verða engu áhættusamari en flugferðir og geimskipin munu geta flutt stóra hópa fólks. Þau munu geisast áfram á ógnarhraða, knúin áfram af andefnishreyflum og þeim verður stýrt bæði af tölvum og mönnum.

Til verða tvenns konar geimskip, annars vegar farþega- og flutningaskip og hins vegar hin óhjákvæmilegu orustuskip. Í stærri farþegaskipunum sem ætluð eru til lengri ferða verða t.d. bíósalir, íþróttaaðstaða, leikhús og jafnvel búðir. Þar verða lögreglumenn og læknar og ýmsir aðrir sem nauðsynlegir eru. Eitt orustuskip mun fylgja hverju farþegaskipi.

Ýmis tæki verða um borð t.d. verður hægt að leysa fólk upp og senda líffræðilegu byggingu þeirra með tölvu eða geisla mörg hundruð kílómetra í burtu þar sem það er vonandi endurbyggt. Einnig verður fólk að vera í sérstökum skóm sem eru segulmagnaðir og dragast að gólfinu og kemur þetta í veg fyrir algjört þyngdarleysi.





Smellið hér til að fara aftur á aðalsíðuna.