Geimferðir




Mikil þörf verður á góðum samgöngum milli allra þessara mismunandi pláneta og mismunandi geimstöðva. Það yrðu því að vera reglulegar ferðir til allra byggðra pláneta og geimskipa. Þessar ferðir þyrftu að vera frekar ódýrar til þess að venjulegt fólk gæti notfært sér þær því að það gæti orðið svolítið þreytandi að vera í sömu geimstöðinni í mörg ár án þess að geta farið burt af og til. Einnig verður hægt að skreppa í sumarfrí til annarra pláneta, t.d. fara á sólarströnd á heitri og veðursælli plánetu, fara með skemmtiferðageimskipum og sigla um heiminn í þægindum eða kannski fara í spennandi könnunarleiðangra til óþekktra hluta alheimsins. Í framtíðinni eiga geimferðir eftir að vera eins sjálfsagður hlutur og að ferðast til útlanda er í dag.




Smellið hér til að fara aftur á aðalsíðuna.