Himingeimurinn



Pfhor picture



Geimferðir eru mikilvægar fyrir mannkynið. Að vísu eru mannaðar geimferðir ekki mjög mikilvægar í dag en gervihnettir sem skotið er upp með geimflaugum gera mikið gagn. Þeir gera okkur t.d. kleift að spá betur fyrir um veðrið, að tala við fólk hinumegin á hnettinum og horfa á sjónvarp frá öðrum heimshlutum svo eitthvað sé nefnt. Í framtíðinni verða geimferðir enn mikilvægari. Fólksfjölgun er nú þegar vandamál og ekki verður endalaust hægt að koma fleira fólki fyrir á jörðinni. Þá munum við e.t.v. þurfa að leita annarra byggilegra pláneta og hluti okkar að flytja þangað. Vissulega eru fjarlægðirnar miklar en ekki óyfirstíganlegar.


Geimstodvar   Geimskip
Geimferðir



 English



Verkefnið gerðu: Börkur Ingi Jónsson og Friðrik E. Magnus

HEIM