
Í staðin fyrir venjulega miðasölu eru nokkrir miðasjálfsalar i anddyri bíósins. Á sjálfsölunum eru skjáir þar sem hægt er að sjá auglýsingar um myndir bíósins. Það er innbyggður hljóðnemi í sjálfsölunum svo að það eina sem að þarf að gera er að stinga debetkortinu sínu inn í raufina á sjálfsalanum og segja í hljóðnemann hvaða mynd maður vill sjá. Síðan kemur miðinn út um aðra rauf á sjálfsalanum. Næst getur þú séð inn í sjálft bíóið.