
Bíóið er eins og hringur í laginu. Það eru tveir salir, A og B. A-salur er mjög stór og þar eru allar aðalmyndirnar sýndar í þrívídd. B-salur er bara frekar venjulegur salur. Það er nammisala í bíóinu þar sem hægt er að fá nammi, gos, heitan mat, drykki og fleira. Í hléinu er samt ekki nauðsynlegt að fara og kaupa sér mat eða nammi, það eru tæki á stólunum svo að það er hægt að panta sér nammi eða mat.