Jæja, Daníel er orðinn eins árs. Við héldum afmæli fyrir fjölskylduna á sjálfan afmælisdaginn, síðasta þriðjudag og svo koma vinirnir á morgun. Barnaafmæli eru bestu afmælin því þá fær maður súkkulaðiköku með nammi, sem eru klárlega bestu kökurnar! Ætlum líka að grilla á morgun, vonandi hættir þessi %(#%”#$”@ rigning!
Nóg að gera í vinnunni, er kominn í gagnamál sem þýðir að ég þvælist um allan bæ og vinn hjá bönkunum. Kosturinn er að alla fimmtudaga er ég í Landsbankanum og get borðað með Karen í hádeginu. Ef það eru annars einhverjir HR-ingar eða aðrir tölvunarfræðingar að lesa þetta þá var OMX að auglýsa eftir forriturum og prófurum nýlega, þannig að endilega sækja um!
Færslur (RSS)
18. júní 2006 kl. 1:48 am
er ekki kominn tími á nýja getraun og nýja könnun? Gleðilegan 17da! x
19. júní 2006 kl. 8:32 am
Þú lætur bara eins og þú fáir súkkulaðiköku heima
Við vitum betur… en jæja þá er víst bara ár í næstu súkkulaðiköku
:D 