Stál og hnífur 3

Posted by einar on janúar 15, 2006

Ég var að syngja fyrir Daníel um daginn til að svæfa hann þegar Karen benti mér á að það væri nú ekki huggulegasti textinn sem ég væri að syngja fyrir hann. Ég var að syngja Stál og hnífur sem er með línunum “… við höfnina bátur vaggar rótt, í nótt, MUN ÉG DEYJA!”. Skiptir kannski ekki máli núna þegar Daníel er svona lítill en gæti orðið verra þegar hann fer að skilja textann. Önnur lög sem hafa verið tekið út af sönglistanum:

  • Baby did a bad bad thing - Chris Isaac
  • Baby, I’m gonna leave you - Led Zeppelin
  • Burn Baby Burn - Ash

Neibb, héðan í frá verður það bara Bíbí og blaka!

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. Hrefna jan. 15, 2006 21:54

    Hvernig væri líka að syngja fyrir hann Beautiful boy eftir John Lennon ? :)

  2. Alda jan. 16, 2006 19:13

    Tékkaðu á Eddy Izzard. Hann er actually fyndinn í kvenmannsfötum - eða meira svona maður getur ekki ímyndað sér hann öðruvísi. Mjög fyndinn. x

  3. Alda jan. 16, 2006 19:16

    Uhmm.. það hefur nú tíðkast um ómunatíð að syngja “móðir mín í kví kví” og “Sofðu unga ástin mín” (bæði um börn sem voru borin út) fyrir ungabörn á Íslandi og segja þeim að þau verði soðin og étin af skessu ef þau eru óþekk fyrir jólin. What’s that for child psychology…?