Jæja, þetta er búið að vera ansi viðburðaríkt ár. Í tímaröð:
- Útskrifaðist sem tölvunarfræðingur úr Háskólanum í Reykjavík.
- Eignaðist lítinn strák, Daníel Mána.
- Ég og Karen giftum okkur og skírðum Daníel í leiðinni.
- Byrjaði í fyrstu “alvöru” vinnunni minni, hjá Libra sem er deild í TM Software. Seinna á árinu var Libra svo keypt útúr TM software af sænska fyrirtækinu OMX.
- Fór í árshátíðarferð til Póllands með vinnunni, Karen og Daníel komu með, hittum ættingja Karenar í Póllandi.
- Seldum íbúðina okkar í Guðrúnargötunni, erum að leita að nýrri íbúð.
Verðu erfitt að toppa síðasta ár en vonandi verður jafnmikið fjör á árinu 2006. Gleðilegt ár!
já, kannski á þessu ári getið þið farið til tunglsins
Mér finnst einmitt að við ættum að gera akkúrat hið gagnstæða og hafa þetta eins leiðinlegt og tilbreytingalaust ár og hægt er
Helst bara hanga heima og borða örbylgjumat í hvert mál og kannski fara í útileigu og tjalda útí garði í stað þess að gera eitthvað spennó.
Einar. Nennirðu að senda mér rétta emailið þitt á gmail adressuna mína. Er bara með skeinars adressuna! xox (Takk fyrir síðast)