Vatn 3

Posted by einar on nóvember 26, 2005

Tip: Ef þið eruð einhverntímann með krana inní eldhúsi og stúturinn (eða hálsinn eða hvað þetta heitir, stóra bogalagaða rörið ) dettur af meðan vatnið er á fullu, þá er sniðugt að skrúfa bara strax fyrir vatnið þannig að það haldi ekki áfram að sprautast út. Það sem er ekki jafn sniðugt er að reyna að troða stútnum aftur á meðan vatnið er ennþá að sprautast uppí loftið. Það getur orðið til þess að vatnið fari að sprautast til hliðar og útum allt eldhús…

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. binary nóv. 26, 2005 23:27

    Já, í eina skiptið sem ég hef lent í þessu þá var vatnið sjóðandi heitt, að reyna að troða draslinu aftur á var aldrei option.

  2. Alda nóv. 27, 2005 17:09

    baha. hvert ykkar var aulinn?

  3. einar nóv. 27, 2005 19:49

    Hvort okkar? Hvorugt, þetta er algjörlega fræðilegt!

    Ok, það var ég :(