Super Turbo Diesel Mach 10 rakvél 5

Posted by einar on júní 03, 2005

Var í Bónus í dag. Sá þar rakvél, næstum eins og mína, nema þessi var Turbo útgáfan (eins og fólk sem þekkir mig veit þá er ég með geysimikinn og grófan skeggvöxt sem veldur því að ég þarf að raka mig allt að 4 sinnum í mánuði). Þetta fannst mér áhugavert, Turbo rakvél! Og það er ekki eins og ég sé með einhverja svona ofur rafmagnsrakvél með beinni innspýtingu eða eitthvað, nei, þetta er bara venjuleg Gillette Mach 3 skafa. Ég bara skil ekki hvað Turbo útgáfan getur mögulega haft framyfir mína rakvél? Beittari blöð? Ehh, kröftugra handfang? Það er bara ekki svo mikið í svona tæki sem hægt er að bæta!

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. Árni júní 03, 2005 13:58

    Það er alveg greinilegt að þú tókst ekki viðskiptafræði. “Turbo” er sett fyrir aftan til þess að fína fólkið get keypt sama hlutinn á hærra verði.

  2. Unnur júní 03, 2005 17:42

    Er það ekki Turbo rakvélin sem er með batteríi og svo er skeggið örvað til þess að það rísi með því að gefa manni rafstraum. (Þetta er ekki eitthvað eðlisfræðigrín ;) )

  3. einar júní 03, 2005 20:12

    Árni: Jæja, þú hefur semsagt tekið Viðskiptafræði 101 ;)
    Unnur: Ok, þá veit ég það. Þá er reyndar alveg gild ástæða til að kalla þetta Turbo :)

  4. Unnur júní 04, 2005 08:59

    Hmmm…þetta var ekki komment frá mér hérna fyrir ofan enda ekki þekkt fyrir að vera mikill eðlisfræðigrínari! :)

  5. einar júní 04, 2005 10:51

    :D:D