Lyftur 9

Posted by einar on maí 03, 2005

Af hverju ýtir fólk sem kemur á eftir manni inní lyftu aftur á takkann fyrir hæðina sem það er að fara á jafnvel þó að það sé búið að ýta á hann? Heldur það að lyftan stoppi ekki nema ALLIR sem eru að fara út á hæðinni ýti á takkann?

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. Karen kúla maí 04, 2005 11:39

    Mér finnst það nú alveg fyrirgefanlegt en það sem mér finnst svoooo asnalegt er þegar lyftan stoppar og þá fer fólk að troða sé inní lyftuna áður en það hleypir þeim út sem ætla út á hæðinni. Í alvöru talað, hvort haldið þið að sé auðveldara??? :D

  2. Árni maí 04, 2005 18:31

    Snilld í vinnunni þegar ég var spurður á hvaða takka ætti að ýta til að komast á 5. hæð :D

  3. Bænarí maí 04, 2005 19:18

    Mér finnst það nú skárra þegar fólk ýtir oft á sama takkann (þó svo að það sé mjög heimskulegt) heldur en þegar fólkið er að fara á hæð sem er neðar en maður er sjálfur að fara. Fólk sem tekur lyftuna upp á þriðju er latt, fólk sem tekur lyftuna upp á aðra… tja… you should cut down on your porklife, mate, get
    some exercise!

  4. Friðrik maí 05, 2005 08:24

    Úff sammála. Ég þoli ekki þegar fólk tekur lyftuna eina eða tvær hæðir. Það er líka ótrúlegt hvað þessir upp og niður takkar geta vafist fyrir fólki! Og það er ótrúlegt hvað maður getur haft miklar skoðanir á lyftum.

  5. einar maí 05, 2005 11:24

    Hehe, já, það virðast allir hafa sterkar skoðanir á lyftum og hvernig fólk notar þær :)

  6. lauga maí 05, 2005 21:23

    Næst þegar þú ferð inn í lyftu fulla af fólki, ekki snúa þér í átt að dyrunum eins og venjulega.. labbaðu bara inn í lyftuna og stattu kjur og glottu helst… og sjáðu hvernig fólk bregst við :)

  7. Nafnlaust maí 10, 2005 20:18

    Krakkar mínir, ég get ekki stillt mig yfir öllum þessum lyftuskrifum, ég rakst á alveg frábæra grein um 30 leiðir til að pirra fólk í lyftu :D:D
    Þetta er allt frá því að bora í nefið og til þess að reyna að fá alla í lyftunni til þess að koma í hópfaðmlag með sér! Upplagt til að leika í næstu sumarbústaðaferðum :D:D
    Mamma ( Hrefna)

  8. Viggeh! maí 11, 2005 10:32

    Það böggar mig mest þegar maður er á leiðinni upp og einhver “pantar” lyftuna með því að ýta bæði á upp og niður takkann. Áður en maður veit er maður óvart kominn niður í kjallara.

    Svo vantar cancel takka í lyftur! Óþolandi að rekast í 3 þegar maður ætlar að ýta á 4. Maður fær svona The fingers you have used are too fat stemningu

  9. einar maí 11, 2005 10:47

    Jamm, fólk ýtir á bæði upp og niður takkann og kvartar svo yfir því að lyftan sé “biluð” þegar hún fer ekki strax í þá átt sem það er að fara.