Kvikmyndagetraun - úrslit 5

Posted by einar on nóvember 28, 2004

Sigurvegarinn í kvikmyndagetrauninni var Ósk með 4 rétt svör, í öðru sæti var Unnur og í þriðja sæti Karen. Enginn strákur komst á listann, ég bjóst nú a.m.k. við að Friðrik mundi þekkja Batman kvótið miðað við hvað við höfum oft horft á þessa mynd! En rétt svör voru a.m.k. Wayne’s World 2, Goodfellas, Batman, Nightmare Before Christmas og Taxi Driver. Engin verðlaun í þetta sinn en kannski næst ef einhver kemur með góða hugmynd fyrir verðlaun.

Var annars í sumarbústað með nokkrum HR-ingum á föstudagsnóttina. Bjór, Idol, hamborgarar í kvöld og morgunmat, Actionary, heitur pottur og skelfilegt söngtríó (ég, Hrannar og Gunni). Lauga kenndi okkur flóknasta spil í heimi og Gunni átti afmæli og datt svona 5 sinnum á pallinum. Mikið stuð :)

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. dagbjört nóv. 28, 2004 22:41

    Já já… Rjóminn stendur fyrir sínu :)

  2. Hrannar nóv. 29, 2004 00:18

    svo er bara spurning hvenær við eigum að halda ættarmót… vííí :)
    Annars var þetta snilld, og hugsa sér að tríóið var að gagnrýna fólkið í ædolinu fyrir að kunna ekki að syngja:D ættum kannski að lýta í eigin barm fyrst 8)

  3. lauga nóv. 29, 2004 00:37

    Hvað meinaru flóknasta spil í heimi? Þetta er einfaldasta spil í heimi! :D

  4. Sólrún nóv. 29, 2004 11:32

    Vá hvað þetta var gaman :) Ég og fleiri skemmtum okkur konunglega þegar sumir voru að fljúga á rassinn á pallinum - hahahhahaha

    Góðar stundir bræður og systur
    Ykkar Lilla

  5. Gunni nóv. 29, 2004 22:08

    Já og ég datt ekki 5 sinnum heldur 2svar. Vildi bara koma því að;)