Barnagæsla 4

Posted by einar on október 06, 2004

Karen fékk smá hlutastarf í Skýrr núna í kennaraverkfallinu, að passa krakka starfsmanna einu sinni í viku. Ég þyrfti að fá svona vinnu, kæmi mjög vel út á ferilskránni að hafa “verktaki hjá Skýrr”. Gæti hinsvegar orðið hálf bjánalegt í atvinnuviðtölum ef ég væri spurður útí það.

“Já, ég sé hérna að þú hefur unnið sem verktaki hjá Skýrr, hvað varstu að vinna við hjá þeim?”

“Öhh, ýmislegt svona, gæslu aðallega…”

“Hverskonar gæslu þá, umsjón með netkerfum?”

“Nei, barnagæslu…”

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. Karen okt. 07, 2004 08:34

    hehe ég skal leggja inn gott orð fyrir þig ;)

  2. Unnur okt. 07, 2004 11:33

    Hæ hæ! Ætlaði að fara inn á kvikmyndagetraunina þína því ég hafði nákvæmlega ekkert betra að gera og finn þetta glæsilega blogg sem er algjör draumur fyrir internetfíkil eins og sjálfa mig…alveg nauðsynlegt að láta langt gengna fíkla vita af öllum breytingum sem verða á netinu:-)

  3. Einar okt. 07, 2004 12:41

    Ég verð þá kannski tekinn úr LÉLEGIR BLOGGARAR flokknum á síðunni ykkar?!?!?! ;)

  4. Unnur okt. 08, 2004 10:32

    Já skal kippa því í liðinn eins og skot:) Kannski að þetta hafi haft áhrif…