Geðsýki 4

Posted by einar on september 29, 2004

Tekið af mbl.is:

Ungur háskólanemi var greindur með bráðageðsýki og færður á geðdeild Landspítalans eftir að samnemendur hans komu að honum þar sem hann var berjandi höfðinu á sér utan í vegg og hrópandi í sífellu “Heildun er ANDSTÆÐA diffrunar, heildun er andstæða DIFFRUNAR!”. Talið er að ungi maðurinn hafi snappað eftir að hafa reynt að heilda kvaðradrótina af ex í 18 klukkustundir án árangurs. Í viðtali við Morgunblaðið sagði Skúli Guðjohnsen, yfirlæknir á Landspítalanum, að tilfellum sem þessu hefði fjölgað allverulega undanfarinn mánuð og að Landspítalinn sæi fram á skort á sjúkrarúmum á geðdeild ef þetta héldi áfram. Ekki er vitað á þessu stigi málsins hvort geðsýki unga mannsins er tímabundin eða varanleg, en honum er nú haldið rólegum með stórum skömmtum af Xanax og Prozac.

Trackbacks

Use this link to trackback from your own site.

Comments

Comments are closed.

  1. Karen sept. 29, 2004 08:50

    Í framhaldi taugaáfalls ungs manns í HR var ákveðið á skólastjórnarfundi að fella niður Stærfræðilega greiningu sem skyldufag. Líðan mannsins er eftir atvikum.

  2. Einar sept. 29, 2004 10:14

    I wish…

  3. Hrefna sept. 29, 2004 14:28

    Jæja elsku kallinn minn, þá er nú MAMMA þín farin að lesa síðuna þína og hafa gaman af allri dellunni,maður hefur svo mikinn extra tíma í VERKFALLI ! Komst inn á hana gegnum link á heimasíðu Öldu. Hún er loksins búin að fá staðfestingu frá skólanum og við fórum í hraðferð í morgun í Landsvirkjun,LÍN,Tryggingastofnun og bankann áður en hún fór í þessa myndbandsgerð með Frans. Bless elskan, mamma.

  4. Gunni okt. 01, 2004 17:27

    hmmm…var þetta nokkuð þú einar???? :)